Zenon frá Tarsos
Útlit
Zenon frá Tarsos (forngríska: Ζηνων) var stóískur heimspekingur og nemandi Krýsipposar. Hann tilheyrði tímabili miðstóuspekinnar. Zenon nam ásamt Díogenesi frá Babýlon og Antípater frá Tarsos.
Kenningar Zenons í stóuspeki eru ókunnar en hann tók við af Krýsipposi. Díogenes tók síðar við af Zenoni en ekki er vitað hve lengi Zenon var í forsvari fyrir stóuspekina.
Svo virðist sem hann hafi fallist á allar kenningar stóuspekinnar fyrir utan að hann hafnaði því að heimurinn myndi farast í eldi.
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
- Fyrirmynd greinarinnar var „Zeno of Tarsus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. mars 2006.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/db/Homeros_Caetani_Louvre_Ma440_n2.jpg/20px-Homeros_Caetani_Louvre_Ma440_n2.jpg)