Uummannaq
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/18/Uummannaq.jpg/250px-Uummannaq.jpg)
Uummannaq, er bær á norðvesturströnd Grænlands með um 1300 íbúa (2013). Bærinn er á samnefndri eyju sem er um það bil 12 km² að flatarmáli. Hann er 590 km fyrir norðan heimskautsbaug. Staðsetning: 70° 40'N og 58° 08' V. Uummannaq er hluti af sveitarfélaginu Avannaata. Uummannaq ber nafn af samnefndu fjalli rétt við bæinn, fjallið nær 1170 m hæð. Það er hjartalaga enda þýðir nafnið Uummannaq „hjartalaga“. Aðalatvinnuvegir eru fiskveiðar og selveiði auk ferðamennsku.
Múmíur[breyta | breyta frumkóða]
Í nágrenni við bæinn er forn vetrarbyggð sem kallast Qilakitsoq. Þar varð árið 1972 einhver merkasti fornleifafundur á Grænlandi. Það voru sérlega vel varðveittar múmíur af sex fullorðnum og tveimur börnum. Með C-14 aldursgreiningu er hægt að sjá að þau létust um 1475. Múmíurnar eru nú á Þjóðminjasafninu í Nuuk.
Veðurfar[breyta | breyta frumkóða]
Á Uummannaq-svæðinu ríkir þurrt heimskautaloftslag með um það bil 2000 sólskinsstundum og um það bil 100 mm ársúrkomu. Í köldustu mánuðunum, febrúar og mars, getur frostið farið niður í 35 stig eða meira en hins vegar getur hitinn orðið 15 til 18° C á sumrin. Í Uummannaq er vetrarmyrkur frá 7. nóvember til 4. febrúar enn í staðinn skín miðnætursólin frá 16. maí fram til 28. júlí.
Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)