Tempeh
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9e/Tempeh_tempe.jpg/220px-Tempeh_tempe.jpg)
Tempeh er sojaafurð gerð úr gerjuðum heilum sojabaunum. Tempeh er hefðbundinn matur í Indónesíu. Það er gert með því að gerja baunir með því að nota sérstakan svepp Rhizopus oligosporus.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4d/Tempeh_%28marketed%29_3.jpg/220px-Tempeh_%28marketed%29_3.jpg)
Tempeh er sérstaklega vinsælt á eyjunni Java. Tempeh er líkt tófú á þann hátt að hvoru tveggja er gert úr gerjuðum sojabaunum en í tempeh eru notaðar heilar baunir með öðruvísi eiginleikum og það inniheldur hærra hlutfall af eggjahvítuefnum, trefjum og vítamínum en tófú. Tempeh er þétt í sér og hefur sérstakt bragð.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fa/COLLECTIE_TROPENMUSEUM_Verkoop_van_tempeh-koeken_Java_TMnr_10013113.jpg/220px-COLLECTIE_TROPENMUSEUM_Verkoop_van_tempeh-koeken_Java_TMnr_10013113.jpg)
Talið er að tempeh hafi upprunalega komið fram á mið- eða austurhluta Java. Tengsl virðast milli tófúgerðar sem barst til Java með kínverskum innflytjendum í á 17. öld og tempehgerðar. Sagnfræðingar hafa sett fram þá tilgátu að tempeh hafi orðið til fyrir tilviljun sem aukaafurð við tófúgerð á þann hátt að sojabaunum sem var hent hafi gerjast af völdum sveppsins Rhizopus oligosporus og það hafi svo komið í ljós að þær voru vel ætar.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/85/Membungkus_Tempe.jpg/220px-Membungkus_Tempe.jpg)
Tempeh er unnið úr heilum sojabaunum sem lagðar eru í bleyti og hálfsoðnar. Sérstakar tegundir ef tempeh eru gerðar úr öðrum tegundum bauna og úr hveiti og geta verið úr blöndu af baunum og heilhveiti.
- Ýmsir matarréttir úr tempeh
-
Venjulegt tempeh goreng (ekki úr hrærðu deigi) í Indónesíu
-
Steikt tempeh (úr hrærðu deigi) selt á matarmarkaði í Singapore
-
Tempe bacem
-
Tempe mendoan
-
Kering tempe eða sambal goreng tempe
-
Tempe orek eða orak-arik tempe
-
Tempe penyet
-
kripik tempe eins og nasl (snakk)
-
Steikt menjes kacang
-
Grillað tempe
-
Tempeh samloka
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
- Fyrirmynd greinarinnar var „Tempeh“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. júlí 2019.
- History of Tempeh (soyinfocenter.com)