Tún
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/Van_Gogh_Wheat-Fields-at-Auvers-Under-Clouded-Sky_July_1890.jpg/220px-Van_Gogh_Wheat-Fields-at-Auvers-Under-Clouded-Sky_July_1890.jpg)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c5/Mudriver-easthighlands.jpg/220px-Mudriver-easthighlands.jpg)
- Tún getur einnig átt við samnefnt hverfi í Laugardalnum.
Tún er ræktað land til sláttar eða beitar handa grasbítum. Í túnum má aðallega finna grös, en einnig ýmsa tvíkímblöðunga. Tún þarf reglulega að endurrækta til að fá fram á ný æskilegar tegundir, er hafa hopað undan ágengari tegundum eftir því sem túnin eldast. Uppskera túna fer að mestu fram með slætti og er uppskeran að stærstum hluta hirt í heyrúllur.
Algengustu tegundir túngrasa á Íslandi eru:[breyta | breyta frumkóða]
- Phleum pratense - Vallarfoxgras
- Poa pratensis - Vallarsveifgras
- Festuca rubra - Túnvingull
- Alopecurus pratensis - Háliðagras
- Agrostis - Língresi
- Lolium perenne - Vallarrýgresi