Skriðsund
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/14/EK_Zwemmen_2006_100m_vrij_mannen.jpg/220px-EK_Zwemmen_2006_100m_vrij_mannen.jpg)
Skriðsund (yfirhandarsund eða krol) er sundtegund sem felst í því að handleggir eru réttir fram á víxl með vissri sveiflu og samtímis ganga fætur upp og niður á víxl. Að öllu jöfnu er andað í 3 - 5 hverju taki.
Skriðsund er algengasta keppnisgreinin í sundi. Það er einnig hraðskreiðasta sundaðferðin og er það að öllum líkindum ástæðan fyrir nafngiftinni. Á ensku nefnist keppnisgreinin free style sem þýðir frjáls aðferð. Það er því nánast ómögulegt að gera ógilt, til þess þarf keppandinn að þjófstarta, ganga á botninum eða snúa við of snemma án þess að snerta bakkann. Þrátt fyrir þetta synda allir nokkurn vegin eins í keppnis-skriðsundi.