Pumori
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Pumori%2C_Nepal%2C_Asia.jpg/220px-Pumori%2C_Nepal%2C_Asia.jpg)
Pumori (nepalska: पुमोरि) er fjall á landamærum Nepal og Tíbet. Það er 8 kílómetrum vestur af Mount Everest og er 7161 metra hátt. Nafnið þýðir fjallsdóttir á tungumáli sjerpa en enski fjallgöngumaðurinn George Mallory gaf því nafn. Pumori er bratt og er mikil hætta á snjóflóðum á því.
Lík tveggja íslenskra fjallgöngumann, Kristins Rúnarssonar og Þorsteins Guðjónssonar, fundust við fjallið árið 2018, rúmum 30 árum eftir að þeir fórust á niðurleið af því árið 1988. [1] Annar Íslendingur, Ari Kristins Gunnarsson, kleif tindinn árið 1991 en fórst líklega í snjóflóði á niðurleið. Hann er ófundinn. [2]
- Pumori
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Þorsteinn og Kristinn fundnir eftir 30 ár Mbl.is. Skoðað 12. nóvember 2018.
- ↑ Einn Íslendingur enn ófundinn á Pumori Rúv, skoðað 13. nóv. 2018.