Naðurtunga
Útlit
Naðurtunga | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Ophioglossum azoricum C. Presl |
Naðurtunga (fræðiheiti: Ophioglossum azoricum) er byrkningur af naðurtungnaætt. Hún hefur 1 til 3 blöð út frá uppréttum jarðstöngli. Blaðka þeirra er lensulaga eða oddbaugótt, 2 til 4 sentimetrar á lengd og 5 til 15 millimetrar á breidd.
Gróhirslur naðurtungu er að finna í þéttum röðum eftir endilöngu axi plöntunnar. Naðurtunga á kjörlendi sitt í volgum jarðvegi, s.s. á laugarbökkum eða leirflögum. Hún vex við Atlantshaf, s.s. á Grænlandi, Asóreyjum, Frakklandi, Bretlandi og Ísland (þar sem hún er mjög sjaldgæf).
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Naðurtunga.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)
Wikilífverur eru með efni sem tengist Naðurtunga.