Mezzoforte
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/17/Mezzoforte_Kongsberg_Jazzfestival_2017_%28230424%29.jpg/220px-Mezzoforte_Kongsberg_Jazzfestival_2017_%28230424%29.jpg)
Mezzoforte er bræðingshljómsveit sem var stofnuð árið 1977. Stofnendur Mezzoforte voru Eyþór Gunnarsson (píanó/hljómborð), Friðrik Karlsson (gítar), Jóhann Ásmundsson (bassa) og Gunnlaugur Briem (trommur).
Einhverjar mannabreytingar hafa verið á þeim árum sem hljómsveitin hefur verið starfandi. Meðal annars var saxófónleikarinn Kristinn Svavarsson meðlimur sveitarinnar frá 1982 til 1985 en saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson gekk í sveitina um miðjan 10. áratuginn.
Smáskífan Garden Party náði árið 1983 miklum vinsældum í Evrópu og komst ofarlega á ýmsa vinsældarlista. Alþjóðlegar vinsældir hljómsveitarinnar voru miklar upp úr því.
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Mezzoforte.
- „Mezzoforte (á ensku)“. Sótt 15. desember 2005.