Ljótipollur
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/43/Lj%C3%B3tipollur_Crater_Lake_-_2013.08_-_panoramio.jpg/220px-Lj%C3%B3tipollur_Crater_Lake_-_2013.08_-_panoramio.jpg)
Ljótipollur er sprengigígur á Landmannaafrétti. Sunnan hans er Frostastaðavatn. Ljótipollur er syðsti gígurinn í Veiðivatna-goskerfinu. Ljótipollur er fagurrauður með háa gígbarma og vatni í botninum. Vatnið er mjög djúpt. Í vatninu er nokkur veiði þó svo það sé að- og frárennslislaust og veiðist einungis urriði sem getur oft orðið nokkur pund. Vatnið er í 568 m hæð yfir sjáfarmáli.
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
- Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, L-R. Örn og Örlygur.