Le Havre
Appearance
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c2/Le_Havre_Vue_Plage_14_07_2005.jpg/220px-Le_Havre_Vue_Plage_14_07_2005.jpg)
Le Havre er hafnarborg í umdæminu Seine-Maritime í Normandí í Frakklandi. Hún stendur á bakka árinnar Signu þar sem hún rennur út í Ermarsund. Höfnin í Le Havre er önnur stærsta höfn Frakklands á eftir Marseille. Íbúar eru um 170 þúsund (2017). Borgin var stofnuð af Frans 1. árið 1517 þar sem höfnin í þorpinu Harfleur ofar við ána var að fyllast af seti. École de management de Normandie-skólinn er staðsettur í borginni.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Le Havre.