Langston Hughes
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9a/Langston_Hughes_1936.jpg/220px-Langston_Hughes_1936.jpg)
Langston Hughes (1. febrúar 1902 – 22. maí 1967) var bandarískt skáld, rithöfundur, leikskáld og blaðamaður og einn af forystumönnum Harlem-endurreisnarinnar í New York á 3. áratugnum. Hann var talsmaður þess að þeldökkir Bandaríkjamenn ættu að vera stoltir af kynþætti sínum og fékk því á sig þá ásökun síðar að hann væri fylgjandi kynþáttahyggju og talinn úreltur eftir því sem kynþáttaaðskilnaður lét undan síga í Bandaríkjunum. Hann átti þó áfram sína fylgjendur og var síðar upphafinn aftur í mannréttindabaráttunni á 7. áratugnum.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Langston Hughes.