Kría
Kría | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Kríur á bryggjupolla
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
![]() Varpstöðvar sýndar með rauðum lit, veturseta með bláum og farleiðir með grænum.
|
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/58/Arctic_tern_8664.jpg/220px-Arctic_tern_8664.jpg)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f2/Sterna_paradisaea_MHNT.ZOO.2010.11.137.5.jpg/220px-Sterna_paradisaea_MHNT.ZOO.2010.11.137.5.jpg)
Kría (fræðiheiti: Sterna paradisaea) er fugl af ætt þerna. Hún er farfugl á Íslandi og verpir hér og annars staðar á norðurslóðum. Krían er sá farfugl á Íslandi sem lengst ferðast frá landinu þegar hún fer í burtu. Krían er hvít á kviði og stéli og undir væng, grá á baki og ofan á vængjum og hefur svartan koll og svarta vængbrodda. Hún hefur rauða fætur og rautt nef á sumrin en svart á veturna og eimir stundum eftir af svörtum nefbroddi snemma sumars. Kría er um 38 sentimetrar á lengd. Krían lifir aðalega á sílum og öðrum smáfiski. Krían verpir 1-3 eggjum og er 16 daga að unga þeim út. Ungarnir eru fleygir á 3-4 vikum.
Krían hefur verið friðuð tegund á Íslandi síðan 1882. Hrun í sandsílastofninum sem má trúlega rekja til loftslagsbreytinga hefur haft afar neikvæð áhrif á afkomu kríunnar á Íslandi. Varpárangur kríunnar hefur verið mjög lélegur frá og með 2005. Krían var ekki metin í hættu við byrjun 20. aldar en á nýjasta válista Náttúrufræðistofnunarinnar frá árinu 2018 er krían nú metin í nokkurri hættu.
Hæsti aldur sem vitað er með vissu til að fugl af þessari tegund hafi náð er 34 ár.[1]
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
- [https://web.archive.org/web/20190422193417/https://www.ni.is/node/27118 Geymt 22 apríl 2019 í Wayback Machine Kría (Sterna paradisaea) á vef Náttúrufræðistofnunnar]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. mars 2021. Sótt 26. mars 2021.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)