Ibn Battuta
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/02/Har%C3%AEr%C3%AE_Schefer_-_BNF_Ar5847_f.51.jpg/220px-Har%C3%AEr%C3%AE_Schefer_-_BNF_Ar5847_f.51.jpg)
Abu Abdullah Muhammad Ibn Battuta (arabíska: أبو عبد الله محمد ابن بطوطة ) (24. febrúar 1304 – 1368/1377) var marokkóskur berbi, súnní-íslamsfræðingur og lögfræðingur sem er best þekktur fyrir ferðir sínar um nánast allan hinn íslamska heim á hans tíð. Hann ferðaðist meðal annars til núverandi Pakistans, Indlands, Maldíveyja, Srí Lanka, Suðaustur-Asíu og allt til Kína.