Hastings
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/89/Hastoldtown.jpg/220px-Hastoldtown.jpg)
Hastings er borg í sýslunni Austur-Sussex á Englandi. Þekktust er hún fyrir orrustuna við Hastings sem háð var þar í grennd árið 1066. Orrustan markaði upphaf landvinninga Normanna á Englandi.
Hastings var mikilvægur fiskibær í margar aldir. Þótt fiskiveiðar séu ekki jafnmikilvægar í borginni og áður er þar stærsti strandveiðifloti á Englandi. Seinna varð Hastings vinsæll orlofsstaður. Borginn hefur einnig verið kölluð upphafsstaður sjónvarps, því uppfinningamaðurinn John Logie Baird bjó þar á árunum 1922–24.
Hastings er ennþá vinsæll ferðamannastaður, þótt hótelin séu færri í dag en áður. Árið 2018 voru íbúar bæjarins um 93.000.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/be/Flag_of_England.svg/40px-Flag_of_England.svg.png)