Húnabyggð
Húnabyggð | |
---|---|
Hnit: 65°40′N 20°18′V / 65.667°N 20.300°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Blönduós |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Pétur Arason |
Flatarmál | |
• Samtals | 4.000 km2 |
• Sæti | 7. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.263 |
• Sæti | 33. sæti |
• Þéttleiki | 0,32/km2 |
Póstnúmer | 540, 541 |
Sveitarfélagsnúmer | 5613 |
Vefsíða | blonduos |
Húnabyggð er sveitarfélag við Húnaflóa á Norðurlandi vestra sem varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps árið 2022. Kosið var um sameininguna 19. febrúar 2022 og var hún samþykkt með 97,8% gildra atkvæða í Blönduósbæ og 62,3% gildra atkvæða í Húnavatnshreppi. Sameiningin tók gildi í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 2022 en samhliða þeim kosningum fór fram könnun á meðal íbúa um nafn á hið sameinaða sveitarfélag. Nafnið Húnabyggð fékk þar 69% fylgi, Blöndubyggð 23% og Húnavatnsbyggð 8%.
Húnabyggð er á meðal stærstu sveitarfélaga landsins að flatarmáli og nær frá Húnaflóa, þar sem þéttbýli er á Blönduósi, upp á miðhálendið þar sem hlutar bæði Langjökuls og Hofsjökuls eru innan marka sveitarfélagsins og Kjalvegur þar á milli. Blönduvirkjun er einnig í sveitarfélaginu með tilheyrandi miðlunarlónum.
Sveitarstjórn[breyta | breyta frumkóða]
Núverandi sveitarstjórn var kjörin í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022. Skipting fulltrúa var eftirfarandi:
Flokkur | Fulltrúar | |
---|---|---|
Sjálfstæðismenn og óháðir (D) | 4 | |
Framsókn og aðrir framfarasinnar (B) | 3 | |
H-listinn (H) | 1 | |
Gerum þetta saman (G) | 1 | |
Samtals | 9 |
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda saman meirihluta í sveitarstjórn.