Gullna hindin
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/25/Brixham.hind.750pix.jpg/220px-Brixham.hind.750pix.jpg)
Gullna hindin var enskt galíon, þekktust sem flaggskip Francis Drake sem hann sigldi á umhverfis jörðina 1577-1580. Upphaflega hét skipið Pelíkaninn, en Drake endurnefndi það rétt áður en hann lagði inn í Magellansund, í höfuðið á Sir Christopher Hatton, sem hafði fjármagnað ferðina og sem hafði gullinn hjört í skjaldarmerki sínu.
Tvær eftirlíkingar eru af skipinu; ein í Southwark í London og önnur í hafnarbænum Brixham í Devonskíri.