Giambologna
Appearance
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/45/Goltzius-Bologna.png/220px-Goltzius-Bologna.png)
Giambologna (1529 – 13. ágúst 1608) var flæmskur höggmyndasmiður sem er þekktur fyrir styttur úr marmara og bronsi í anda manierismans. Hann fæddist í Douai og hóf nám hjá Jacques du Broeucq í Antwerpen en flutti til Rómar 1550 og síðan Flórens árið 1553 þar sem hann starfaði til dauðadags. Eitt þekktasta verk hans er Neptúnusargosbrunnurinn í Bologna.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Giambologna.