Gavrilo Princip
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d3/Gavrilloprincip.jpg/220px-Gavrilloprincip.jpg)
Gavrilo Princip (serbnesk kyrillíska: Гаврило Принцип; 25. júlí 1894 – 28. apríl 1918) var Bosníuserbi sem barðist fyrir þann málstað að allir Suður-Slavar fengju sjálfstæði frá Austurríki-Ungverjalandi og að Bosnía yrði hluti Serbíu. Hann myrti Frans Ferdinand erkihertoga, ríkisarfa Austurrísk-ungverska keisaradæmisins og eiginkonu hans, Soffíu af Hohenberg, þegar þau voru í opinberri heimsókn í Sarajevó 28. júní 1914. Atvikið, sem varð þekkt sem morðin í Sarajevó, varð til þess að Austurríki lýsti yfir stríði á hendur Serbum, sem aftur leiddi af sér fyrri heimsstyrjöldina.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Gavrilo Princip.