Fjalladepla
Útlit
Fjalladepla | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Veronica alpina L. |
Fjalladepla (fræðiheiti: Veronica alpina) er depla af græðisúruætt.
Lýsing[breyta | breyta frumkóða]
Blóm fjalladeplu eru 3 til 5 mm í þvermál og standa á stuttum leggjum í klasa. Þau eru dökkblá að lit en bikarblöðin eru dökk-blágræn með hvítum randhárum. Í hverju blómi eru tvær fræflar og ein fræva. Aldin fjalladeplu eru 4 til 6 mm að lengd, sýlt í annan endann og hefur stuttan stíl.
Stöngullinn er alsettur oddbaugóttum, sljótenntum blöðum.
Fjalladepla vex, eins og nafnið gefur til kynna, í fjallshlíðum, snjódældum og lækjardrögum til fjalla.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Fjalladepla.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)
Wikilífverur eru með efni sem tengist Veronica alpina.