Eid al-Fitr
Appearance
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c5/Celebrating_Eid_in_Tajikistan_10-13-2007.jpg/220px-Celebrating_Eid_in_Tajikistan_10-13-2007.jpg)
Eid al-Fitr (arabíska: عيد الفطر ʻĪd al-Fiṭr, „fösturofshátíð“) er mikilvæg trúarhátíð í Íslam sem markar lok föstumánaðarins Ramadan.
Eid al-Fitr er fyrsti dagur mánaðarins Shawwal. Dagsetningin er breytileg auk þess sem hún er ólík milli staða þar sem mánuðirnir eru tunglmánuðir sem byggjast á útreikningum trúarleiðtoga á hverjum stað. Venjulega hefst Eid al-Fitr við sólarlag þegar nýtt tungl sést eftir 29. dag fyrri tunglmánaðar. Hátíðin stendur í 1-3 daga. Á þessum dögum taka múslimar þátt í sérstökum bænum, gefa ölmusu og sýna af sér gleði. Fasta er bönnuð meðan á Eid al-Fitr stendur.
Eid al-Fitr er önnur af tveimur Eid-hátíðum. Hin er fórnarhátíðin Eid al-Adha.