Dynjandi
Útlit
Dynjandi | |
---|---|
![]() Kort sem sýnir staðsetningu fossins | |
![]() | |
Staðsetning | Arnarfjörður, Vestfirðir, Ísland |
Hnit | 65°43′57″N 23°11′55″V / 65.7325192°N 23.1985946°V[1] |
Hæð | 100 m |
Vatnsrás | Dynjandisá |
Dynjandi (eða Fjallfoss) er 100 metra hár foss í Arnarfirði á Vestfjörðum Íslands. Fossinn kemur ofan af Dynjandisheiði og fyrir neðan hann er einnig eyðibýli sem heitir Dynjandi. Á bjargbrún er fossinn 30 metra breiður en 60 metra breiður neðst. Fleiri fossar eru í fossaröðinni: Bæjarfoss, Hundafoss, Göngumannafoss, Strompglúfrafoss og Hæstahjallafoss. Fossinn var friðlýstur árið 1980.
Meðal sumarrennsli Dynjandisár er 2 til 8 rúmmetrar en meðal vetrarrennsli er 1 til 4 rúmmetrar vatns á sekúndu. Upptök sín á áin í smávötnum á Dynjandisheiði.
Myndir[breyta | breyta frumkóða]
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
- „Dynjandisfoss“. Sótt 1. desember 2005.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Dynjandi.
- „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“. Vísindavefurinn.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)