Fara í innihald

Dalalíf

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dalalíf
LeikstjóriÞráinn Bertelsson
HandritshöfundurÞráinn Bertelsson
Ari Kristinsson
FramleiðandiJón Hermannsson
Nýtt líf sf
LeikararEggert Þorleifsson
Karl Ágúst Úlfsson
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir
Sigurður Sigurjónsson
Frumsýning1984
Lengd83 mín.
Tungumálíslenska
AldurstakmarkKvikmyndaeftirlit Ríkisins L
UndanfariNýtt líf
FramhaldLöggulíf

Dalalíf er Íslensk gamanmynd sem að var frumsýnd 30. september 1984 og önnur myndin í þríleik Þráins Bertelssonar um Þór og Danna, á eftir Nýju lífi frá 1983 og fyrir Löggulífi frá 1985. Í þessari mynd fara þeir í sveit og stofna nýja og undarlega tegund af ferðaþjónustu. Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson fara með aðalhlutverkin.

Kvikmyndin var búin til til þess að fá fjármagn fyrir kvikmyndina Skammdegi sem að Þráinn leikstýrði árið 1985, en það vantaði fjármagn fyrir myndina og datt honum þá í hug að gefa út gamanmynd. Kvikmyndin var skrifuð af Þránni og Ara Kristinnssyni og tók það að skrifa myndina rúmlega þrjá daga. Tökur hófust í maí 1984[1] og fóru þær fram í Neðra-hálsi í Kjós.[2]

Kvikmyndin er í miklu uppáhaldi hjá mörgum íslendingum og á dyggan aðdáendahóp.[3]

Söguþráður[breyta | breyta frumkóða]

Þór og Danni eru komnir aftur frá Vestmannaeyjum, slyppir og snauðir. Kaupmaðurinn á horninu er hættur að skrifa hjá þeim og hungurvofan á næsta leiti. Af óbilandi bjartsýni taka þeir því að sér að reka stórbú í Kjósinni meðan bóndinn bregður sér í bændaferð til Noregs. Þeir félagar þreytast þó fljótt á venjulegum bústörfum og auglýsa þess í stað "Dalalífsvikur" fyrir borgarbúa - og þar fer af stað einhver sú alfyndnasta atburðarrás sem sést hefur í íslenskri kvikmynd.

Veggspjöld og hulstur[breyta | breyta frumkóða]

Sama hönnun var notuð á DVD hulstrinu og upprunalega veggspjaldi. Þráinn Bertelsson var ekki nógu sáttur með það, og fór með það í blöðin að hann ætti höfundarrétt á veggspjaldinu og að Sena hafi notað það án hans leyfis.

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

  1. „Líf og fjör í Dölunum - Helgarpósturinn“. timarit.is. 31.5.1984. Sótt 20. júní 2024.
  2. „Dalalíf - Ný kvikmynd eftir Þráin Bertelsson - Helgarpósturinn“. timarit.is. 13.9.1984. Sótt 20. júní 2024.
  3. „Sígildar íslenskar á DVD - Fréttablaðið“. timarit.is. 22.7.2005. Sótt 22. júní 2024.
  Þessi kvikmyndagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.