Dýralæknir
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/ba/US_Navy_040129-N-8937A-023_Army_Capt._Sandi_Parriott_conducts_a_routine_spaying_procedure_on_a_DOD_family_housecat.jpg/250px-US_Navy_040129-N-8937A-023_Army_Capt._Sandi_Parriott_conducts_a_routine_spaying_procedure_on_a_DOD_family_housecat.jpg)
Dýralæknir er læknir með próf í dýralæknisfræði sem meðhöndlar sjúkdóma í dýrum, gefa þeim lyf og fylgist með heilsu þeirra. Í mörgum löndum er starfsemi dýralækna stjórnað með lögum. Á Íslandi sér Matvælastofnun um eftirlit á dýralæknum.
Dýralæknar geta verið sérfræðingar á tilteknu sviði dýralæknisfræði, annað hvort í meðhöndlun sérstrakra hópa dýra svo sem gæludýra, búfjár, dýragarðsdýra eða hesta, eða í ákveðinni læknisfræðigrein eins og uppskurði, húðsjúkdómafræði eða lyflæknisfræði. Eins og aðrir læknar gera dýralæknar grein fyrir siðferðilegum spurningum í sambandi við velferð sjúklinganna þeirra. Deilt er um hvort fegrunaraðgerðir svo sem að fjarlægja kattaklær og að stýfa skott á hundum ræmi saman við dýralæknisfræðileg siðferðisgildi.