Döðluplóma
Útlit
Döðluplóma eða persimónía er ætur ávöxtur persimóníutrjáa. Orðið persimmon á rætur sínar að rekja til Cree-indíánanna í Norður-Ameríku og þýðir „þurrkaður ávöxtur“. Persimóníutré vaxa víða og eru döðluplómur yfirleitt gull til dökkrauðar á litinn og á bilinu 1,5-9 cm í þvermál. Döðluplómur innihalda töluvert af þrúgusykri, prótíni og nýtast í efna- og læknisfræðilegum tilgangi.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Döðluplómum.