Blástjarna
Útlit
Blástjarna | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Blástjarna
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Lomatogonium rotatum |
Blástjarna (fræðiheiti: Lomatogonium rotatum) er einær jurt af maríuvandarætt sem ber ljósblá blóm. Blástjarnan vex í deiglendi, einkum til heiða.
Lýsing[breyta | breyta frumkóða]
Krónan er fimmdeild, um 9 til 15 millimetrar í þvermál. Bikarinn er klofinn og er með fimm mjóum flipum sem eru álíka langir og krónublöðin. Þá eru fræflarnir 5 talsins en frævan stór og bláleit.
Stöngull blástjörnu er dökkfjólublár og hárlaus. Jurtin öll nær 8 til 18 sentímetra hæð og vex í grónu landi, s.s. á áreyrum.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Blástjarna.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)
Wikilífverur eru með efni sem tengist Lomatogonium rotatum.