Berkeley, Kaliforníu
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8e/Berkeleyfromclaremont800x600.jpg/220px-Berkeleyfromclaremont800x600.jpg)
Berkeley er borg í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hún er staðsett í norðanverðri Alameda-sýslu, norðan við Oakland á austurströnd San Francisco-flóa. Íbúar Berkeley eru um 112.578 (2010).
Berkeley er þekkt fyrir að vera ein frjálslyndasta borg Bandaríkjanna. Borgin var miðstöð ýmissa baráttuhreyfinga fyrir mannréttindum og málfrelsi á sjöunda áratugnum. Í borginni austanverðri er einn þekktasti háskóli Bandaríkjanna, Kaliforníuháskóli í Berkeley.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Berkeley, Kaliforníu.