Baðstofuhellir
Útlit
63°24′29″N 19°03′18″V / 63.4081°N 19.055°V Baðstofuhellir er íslenskur hellir við eyðibýlið Hella í Reynishverfi í Mýrdal. Þetta er manngerður hellir sem höggvinn hefur verið í mjúkan sandstein. Hellirinn var hluti af bæjarhúsunum á Hellum. Jón Steingrímsson eldklerkur bjó um tíma í hellinum og stækkaði hann meðan hann var þar. Það var veturinn 1755. Seinna var hellirinn notaður sem fjárhús. Hann tilheyrir nú jörðunni Görðum í Reynishverfi.
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- Árni Hjartarson, Guðmundur J. Guðmundsson og Hallgerður Gísladóttir (1991). Manngerðir hellar á Íslandi. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)