Búastríðið
Appearance
Búastríðið á við um tvö stríð sem háð hafa verið, það fyrra á árunum 1880-1881 og hið síðara 11. október 1899-1902, í bæði skiptin milli Búa og Breta í Suður-Afríku. Fyrra stríðið varð þegar Búar risu upp gegn Bretum þegar þeir innlimuðu Transvaal og það síðara vegna mikilla gullfunda síðar á því svæði og reyndu Bretar þá að innlima Búaveldið í annað sinn. Því lauk með Vereeniging sáttmálanum.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Búastríðið.