Aspromonte
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8e/Monte_Consolino.jpg/220px-Monte_Consolino.jpg)
Aspromonte er fjalllendi nærri borginni Reggio Calabria á Suður-Ítalíu við Messínasund milli Appennínaskagans og Sikileyjar. Það er hluti af Appennínafjöllum. Hæsti tindur fjallsins er Montalto (1.956 m).
Nálægt fjallinu var Giuseppe Garibaldi sigraður og tekinn höndum í orrustunni við Aspromonte árið 1862.