Arthur Miller
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/38/Arthur-miller.jpg/220px-Arthur-miller.jpg)
Arthur Asher Miller (17. október 1915 – 10. febrúar 2005) var bandarískt leikskáld og rithöfundur. Hann var áberandi í bandarísku bókmenntalífi og kvikmyndum í yfir 61 ár. Best þekktu verk Arthur Millers eru Í deiglunni og Sölumaður deyr, en þau hafa bæði verið sett upp í íslensku leikhúsi. Hann var einnig þekktur fyrir skammvinnt hjónaband sitt við leikkonuna Marilyn Monroe (1956-1961) sem snerist til gyðingdóms fyrir hann.