Allianz Arena
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d5/Allianz_arena_daylight_Richard_Bartz.jpg/220px-Allianz_arena_daylight_Richard_Bartz.jpg)
Allianz Arena eða Allianz-leikvangurinn er knattspyrnuleikvangur norðan við München í Þýskalandi. Leikvangurinn tekur 75 þúsund manns í sæti og opnaði 30. maí 2005. Leikvangurinn var hannaður af svissneska arkitektafyrirtækinu Herzog & de Meuron. Bayern München spilar heimaleiki sína þar.