Alexander 8.
Appearance
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f5/Pope_Alexander_VIII%2C_Giovanni_Battista_Gaulli_%281690%29.jpg/220px-Pope_Alexander_VIII%2C_Giovanni_Battista_Gaulli_%281690%29.jpg)
Alexander 8. (22. apríl 1610 – 1. febrúar 1691) sem hét upphaflega Pietro Vito Ottoboni, var páfi frá 1689 til dauðadags. Hann var af feneyskri aðalsfjölskyldu og tók próf í kirkjurétti við Háskólann í Padúu. Hann hóf störf í Páfagarði í valdatíð Úrbanusar 8. Hann var kjörinn eftirmaður Innósentíusar 11. fyrir milligöngu sendiherra Loðvíks 14. Frakkakonungs, en þá var hann orðinn nær áttræður og lifði aðeins sextán mánuði eftir páfakjör sitt. Á þeim tíma gerði hann lítið markvert nema styðja Loðvík og stunda frændhygli í stórum stíl, sem fyrirrennari hans hafði reynt að draga úr vegna mjög slæmrar fjárhagsstöðu Páfagarðs.
Fyrirrennari: Innósentíus 11. |
|
Eftirmaður: Innósentíus 12. |