Fara í innihald

12 mR

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tólf metra kjölbáturinn Freedom sem varði Ameríkubikarinn árið 1980.

Tólf metra kjölbátur (12mR eða tólfa) er flokkur kappsiglingaskúta sem eru hannaðar samkvæmt alþjóðlegu metrareglunni. „Tólf metra“ á ekki við um lengd bátsins, en tólf metra kjölbátar eru oftast 20-23 metrar að lengd. Fyrsta tólfan var smíðuð árið 1907 og þessi gerð var ólympíubátur á ólympíuleikunum 1908, 1912 og 1920 en fáir bátar tóku jafnan þátt. Sumir af þessum bátum voru slúppur með gaffalseglum. Frá 1958 til 1987 var þessi gerð notuð til að keppa í Ameríkubikarnum. Allir þeir bátar voru með bermúdaseglum.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]