Ívan Túrgenev
Útlit
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/IvanTurgenev.jpeg/220px-IvanTurgenev.jpeg)
Ívan Sergejevítsj Túrgenev (rússneska: Иван Сергеевич Тургенев) (9. nóvember 1818 – 3. september 1883) var rússneskur rithöfundur.
Túrgenev var talinn fremstur rússneskra raunsæishöfunda meðan hann lifði, en hann hefur síðan fallið í skuggann af Leó Tolstoj og Fjodor Dostojevskíj. Ívan Túrgenev var þó brautryðjandi á ýmsum sviðum, og var fyrsti rússneski höfundurinn sem varð þekktur í Evrópu. Skáldsaga hans, Feður og synir, sem kom út 1862 er álitin eitt af öndvegisritum heimsbókmenntanna. Árið 2007 komu út á íslensku Fjórar sögur í nýjum þýðingum hjá Hávallaútgáfunni.
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
- Verk Túrgenevs á íslensku; af Gegnir.is[óvirkur tengill]
- Í tilefni 100 ára ártíðar skáldsins; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ívan Túrgenev.