Fara í innihald

Í ljósi sögunnar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Í ljósi sögunnar eru útvarps- og hlaðvarpsþættir eftir Veru Illugadóttur. Þættirnir hófu göngu sína árið 2016 og eru frumfluttir á Rás 1. Í þáttunum er fjallað um ýmis sagnfræðileg málefni, gjarnan með skírskotun í málefni líðandi stundar.

Þættir[breyta | breyta frumkóða]

Frumflutt Titill Lýsing
8. janúar 2016 Saga Sádi-Arabíu Fjallað um sögu Sádi-Arabíu, hvernig þetta ríki í eyðimörk Arabíuskagans varð og til og hvernig það komst til áhrifa á alþjóðavettvangi.
15. janúar 2016 Eiturlyfjasmyglarar í Mexíkó Aldarlöng saga eiturlyfjasmyglara í Mexíkó og rætur þeirrar vargaldar sem þar geisar á milli glæpagengja.
22. janúar 2016 Íranska kjarnorkuáætlunin Fjallað um sögu írönsku kjarnorkuáætlunarinnar. Upphaf hennar má rekja allt til upphafs sjötta áratugarins, en fyrstu skrefin á kjarnorkubrautinni tóku Íranar með dyggri aðstoð og stuðningi Bandaríkjanna.
29. janúar 2016 Mubarak og egypska byltinginn Fimm ár eru um þessar mundir síðan Hosni Mubarak Egyptalandsforseti hrökklaðist frá völdum eftir þriggja vikna fjöldamótmæli á götum egypskra borga. Í þættinum er rifjuð upp saga egypsku byltingarinnar og frásagnir Íslendinga sem voru í Kaíró þessa afdrifaríku daga í janúar og febrúar 2011.
5. febrúar 2016 Forsetakosningar í BNA 1948 Í þættinum er fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey.
12. febrúar 2016 Vladimír Pútín Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, feril hans í sovésku leyniþjónustunni KGB, afdrifarík augnablik í Dresden í Austur-Þýskalandi, og hvernig svo ólíklega vildi til að hann komst að lokum til æðstu metorða í Rússlandi.
17. febrúar 2016 Rúmenska byltingin Í þættinum er fjallað um rúmensku byltinguna í desember 1989 og síðustu daga einræðisherrans Nicolae Ceausescus.

Þátturinn var endurfluttur 27. desember 2019.

19. febrúar 2016 Morðið á Olof Palme Í þættinum er fjallað um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og árangurslitla leit sænsku lögreglunnar að banamani hans, en þrjátíu ár eru um þessar mundir frá því að Palme var skotinn til bana á götu í miðborg Stokkhólms.
26. febrúar 2016 Morðið á Olof Palme II Síðari þáttur um morðið á sænska forsætisráðherranum Olof Palme, en um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin síðan hann var skotinn til bana í miðborg Stokkhólms. Í þessum þætti er fjallað nánar um árangurslitla leit sænsku lögreglunnar að banamanni forsætisráðherrans og farið yfir ýmsar kenningar um það hver gæti hafa staðið að baki morðinu. Voru það kúrdískir hryðjuverkamenn, suðurafríska leyniþjónustan eða jafnvel lögreglan sjálf?
4. mars 2016 Donald Trump Í þættinum er fjallað um ættir bandaríska forsetaframbjóðandans og auðjöfursins Donalds Trump, og hvernig afi hans og faðir auðguðust á sínum tíma. Afinn, þýskur innflytjandi, rak meðal annars hótel og vændishús fyrir gullgrafara í gullæðinu í Klondike, og sonur hans, faðir Donalds Trump, byggði svo upp mikið fasteignaveldi í New York með stuðningi úr opinberum sjóðum, en var umdeildur bæði fyrir kynþáttamismunun og fjármálamisferli.

Þátturinn var endurfluttur 19. ágúst 2016.

11. mars 2016 Náttúruhamfarir og kjarnorkuslys í Japan Fimm ár liðin frá náttúruhamförunum miklu og kjarnorkuslysinu í Japan 11. mars 2011, þegar sterkur jarðskjálfti, níu að stærð, reið yfir Japan, flóðbylgja skall á norðausturströnd landsins og alvarlegt bræðsluslys varð í kjarnorkuveri í Fukushima.
14. mars 2016 Æska og uppvöxtur Donalds Trumps Í þættinum verður fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf viðskiptaferils forsetaframbjóðendans og fasteignajöfursins Donalds Trumps.
1. apríl 2016 Radovan Karadzic Í þættinum er fjallað um ævi Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníuserba í Júgóslavíustríðinum, sem nýverið var dæmdur í fjörutíu ára fangelsi af stríðsglæpadómstól fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni, og lygilegan flótta hans undan réttvísinni í þrettán ár.
8. apríl 2016 Nagorno-Karabakh í Kákasus Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasus sem Armenía og Aserbaísjan hafa eldað grátt silfur vegna frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og síðast kom til átaka í héraðinu fyrir örfáum dögum.
15. apríl 2016 Líbía Í þættinum er fjallað um sögu Líbíu í Norður-Afríku á tuttugustu öld.

Þátturinn var endurfluttur 20. apríl 2018.

22. apríl 2016 Dilma Rousseff Í þættinum er fjallað um ævi Dilmu Rousseff Brasilíuforseta, sem nú er sökuð um spillingu og embættisglöp. Hún var skæruliði á dögum herforingjastjórnar í Brasilíu, sat í fangelsi og sætti þar hryllilegum pyntingum - en varð síðar forseti eins fjölmennasta og stærsta ríkis á jörðinni og ein valdamesta kona heims.
29. apríl 2016 Tsjernóbyl-slysið Um slysið í Tsjernóbyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu 26. apríl 1986, alvarlegasta kjarnorkuslys sögunnar.
6. maí 2016 Erdogan Tyrklandsforseti Fjallað um ævi og feril Recep Tayyip Erdogans, forseta Tyrklands.
13. maí 2016 Hillary Rodham Clinton Fjallað um bandarísku stjórnmálakonuna Hillary Clinton, æsku hennar og námsár og upphaf sambandsins hennar við Bill Clinton.
20. maí 2016 Nauðungarflutningar á Krímtatörum Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn.
3. júní 2016 Nepalska konungsfjölskyldan Í þættinum er fjallað um konungsmorðin í Nepal, þegar, árið 2001, að krónprins Nepals skaut til bana alla sína nánustu fjölskyldu, þar á meðal konung og drottningu landsins.
10. júní 2016 Rodrigo Duterte Í þættinum er fjallað um hinn umdeilda forseta Filippseyja, Rodrigo Duterte, sem styður dauðasveitir sem myrða eiturlyfjasala og aðra glæpamenn og hefur jafnvel sjálfur drepið menn.

Þátturinn var áður á dagskrá í júní.

27. júní 2016 Boko Haram Í þættinum er fjallað um sögu nígerísku öfgasamtakanna Boko Haram. Vígamenn samtakanna eru taldir hafa að minnsta kosti tuttugu þúsund mannslíf á samviskunni og meira en tvær milljónir manna hafa lent á hrakhólum vegna árasa þeirra, sem beinast jafnt gegn nígerískum stjórnvöldum og óbreyttum borgurum.
1. júlí 2016 Victoria Woodhull Í þættinum er fjallað um lygilega ævi baráttukonunnar Victoriu Woodhull, sem árið 1872 varð fyrsta konan til að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna, mörgum áratugum áður en bandarískar konur fengu kosningarétt. Hún var sömuleiðis með fyrstu kvenkyns verðbréfasölum á Wall Street, sjáandi, tugthúslimur, og boðberi frjálsra ásta löngu á undan sinni samtíð.
8. júlí 2016 Indland og Pakistan Í þættinum er fjallað um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947, aðdraganda skiptingarinnar og þær ómældu hörmungar sem þær höfðu í för með sér fyrir borgara beggja nýju ríkjanna.

Þátturinn var endurfluttur 30. júní 2017.

15. júlí 2016 Indland og Pakistan II Seinni þáttur um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947. Í þessum þætti er fjallað um eftirmál skiptingarinnar og hlutskipti almennra borgara í báðum nýju ríkjunum, en allt að fimmtán milljónir manna hröktust á flótta eftir skiptinguna og hundruð þúsunda féllu í átökum eða fórust á flóttanum.

Þátturinn var endurfluttur 7. júlí 2017.

22. júlí 2016 Port Arthur-fjöldamorðin og skotvopn í Ástralíu Í þættinum er fjallað um fjöldamorðin í Port Arthur í Ástralíu árið 1996, þegar ungur maður myrti 35 og særði fjölda manns í mannskæðustu skotárás í ástralskri sögu. Morðin urðu til þess að áströlsk stjórnvöld settu stranga skotvopnalöggjöf og gerðu hundruð þúsunda öflugra skotvopna upptæk, aðgerðir sem stundum eru nefndar sem möguleg fyrirmynd að herðingu skotvopnalaga í Bandaríkjunum.

Þátturinn var áður á dagskrá  24. júní 2016.

29. júlí 2016 Valdaránið í Grikklandi 1967 Í skjóli nætur þann 21. apríl 1967 tóku nokkrir hægrisinnaðir herforingjar öll völd í Grikklandi í hendur sér, settu herlög, bönnuðu stjórnmálaflokka og allt andóf og fangelsuðu þúsundir manna. Herinn stjórnaði Grikklandi næstu sjö árin. Fjallað er um aðdraganda og ástæður valdaránsins, hlutskipti almennings á herstjórnarárunum, skammlífa uppreisn stúdenta í Aþenu og það sem að lokum varð herforingjunum að falli. Þátturinn var endurfluttur 14. júlí 2017.
5. ágúst 2016 Stonewall Í þættinum er fjallað um atburð sem markaði vatnaskil í réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks í Bandaríkjunum og á heimsvísu, gestir á Stonewall Inn, næturklúbbi fyrir homma og hinsegin fólk í Greenwich Village í New York risu upp gegn lögreglumönnum sem ætluðu að loka staðnum, sumarið 1969. Þátturinn var endurfluttur 11. ágúst 2017.
12. ágúst 2016 Raoul Wallenberg Í þættinum er fjallað um ráðgátuna um sænska stjórnarerindrekann Raoul Wallenberg sem bjargaði lífi þúsunda gyðinga í Búdapest í seinni heimsstyrjöld en hvarf svo sporlaust í stríðslok.
26. ágúst 2016 Rætur Íslamska ríkisins Þátturinn er annar af tveimur um rætur og upphaf hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki og hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk og ódæðisverk um heim allan. Í þessum fyrri þætti er farið yfir ævi og ferils Jórdaníumannsins miskunnarlausa Abu Musab Al-Zarqawi, sem notfærði sér ólguna í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna í Írak 2003 til þess að koma á fót hryðjuverkasamtökunum sem síðar urðu að Íslamska ríkinu. Síðari þáttur um Íslamska ríkið verður á dagskrá að viku liðinni.

Þátturinn var endurfluttur í uppfærðri útgáfu 21. júlí 2017.

2. september 2016 Íslamska ríkið II Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk um heim allan. Í þessum síðari þætti er fjallað um það hvernig hópur hryðjuverkamanna í Írak notfærði sér upplausnina í grannríkinu Sýrlandi til að kveða sér hljóðs, og uppgang núverandi leiðtoga samtakanna, Abu Bakr Al-Baghdadi, sem útnefnt hefur sjálfan sig arftaka Múhameðs spámanns á jörðu.

Þátturinn var endurfluttur 28. júlí 2017.

9. september 2016 Islam Karimov og Úsbekistan Í þættinum er fjallað sögu Úsbekistan á síðustu áratugum. Sagt er frá ævi og valdatíð Islams Karimovs, einræðisherrans miskunnarlausa sem nýlega féll frá, og var meðal annars alræmdur fyrir að láta sjóða andófsmenn lifandi, og sömuleiðis litríkri dóttur Karimovs, Gulnöru, sem var ríkasta kona Úsbekistan, dreymdi um að verða alþjóðleg poppstjórna, en lenti svo upp á kant við föður sinn og lenti í stofufangelsi.
16. september 2016 Týndi Franklin-leiðangurinn Í þættinum er fjallað um leiðangur breska landkönnuðarins John Franklins í Norður-Íshaf í leit að norðvestursiglingaleiðinni. Franklin hvarf sporlaust á leiðinni og aldrei hefur fengist fullkomlega á hreint hvað varð af honum, tveimur skipum hans og 130 manna áhöf, en nýverið fannst annað skipa hans á botni við kanadíska heimskautaeyju.
23. september 2016 Kim Il-sung Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins.
30. september 2016 Norður-Kórea II I þættinum er fjallað nánar um sögu Norður-Kóreu, stjórnarhætti stofnanda ríkisins Kim Il Sung sem og valdatíð sonar hans Kim Jong-il, en fljótlega eftir að hann tók við stjórninni varð hryllileg hungursneyð í Norður-Kóreu sem talið er að hafi orðið allt að þremur milljón manns að bana.
7. október 2016 Aleppó Í þættinum er fjallað um sögu borgarinnar Aleppó í norðanverðu Sýrlandi, sem orðið hefur hvað verst úti í sýrlensku borgarastyrjöldinni. Aleppó hefur lengi verið viðskiptamiðstöð Sýrlands og er jafnframt meðal þeirra borga heims sem á sér lengsta sögu óslitinnar búsetu. Í gegnum aldirnar og árþúsundin hafa ótal innrásarherir og konungsríki komið og farið, en borgin alltaf verið á sínum stað.
14. október 2016 Aleppó II Síðari þáttur af tveimur um sögu hinnar stríðshrjáðu borgar Aleppó í Sýrlandi. Í þessum þætti er sjónum beint að þeim rúmlega fjögur hundruð árum sem borgin var á valdi Tyrkjasoldáns. Það tímabil í sögu borgarinnar einkenndist lengi vel af uppgangi og friðsæld, en þegar tuttugasta öldin nálgaðist var friðurinn úti.
21. október 2016 Bhumibol Taílandskonungur Í þættinum er fjallað um ævi Bhumibols Adulyadej, sem ríkti sem konungur Taílands í sjö áratugi, frá 1946 og allt þar til hann lést. Konungurinn var elskaður og dáður af þjóð sinni en ekki yfir það hafinn að blanda sér í stjórnmál Taílands, og ævisaga hans er samofin sögu Taílands síðustu áratugina.
28. október 2016 Nárú Í þættinum er fjallað um eyjuna Nárú í Kyrrahafi, eitt minnsta sjálfstæða ríkis í heimi. Nárú fór á örfáum áratugum frá því að vera eitt ríkasta lands heims til gjaldþrots, og hefur verið í fréttum síðustu misseri vegna umdeildra flóttamannabúða sem eyjaskeggjar reka fyrir áströlsk stjórnvöld. Meðal þess sem einnig kemur við sögu í lygilegru sögu Nárú er fugladrit, bresk popphljómsveit, Leonardo da Vinci, hryðjuverkasamtökin Al-Kaída, þrjóskur norskur skipstjóri og rússneska mafían.

Þátturinn var endurfluttur 4. ágúst 2017.

4. nóvember 2016 Þjóðarmorðið í Namibíu Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar í því sem nú er Namibía í Suðvestur-Afríku réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóð Hereróa sem hafði lítið gert þeim annað en að reyna að krefjast réttar síns gegn yfirgangi Þjóðverja. Tugþúsundum var þá útrýmt á þaulskipulagðan hátt af þýskum hermönnum, fólk látið veslast upp í skraufþurri eyðimörkinni eða þrælað til dauða í fangabúðum.

Þátturinn var uppfærður og endurfluttur 15. nóvember 2019.

11. nóvember 2016 Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948 Fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey.

Þátturinn var áður á dagskrá í febrúar.

18. nóvember 2016 Daniel Ortega Í þættinum er fjallað um stormasama sögu Níkaragva í Mið-Ameríku og sér í lagi ævi og feril Daniels Ortega, sem nýverið var kjörinn forseti landsins í þriðja sinn, en hann var áður leiðtogi skæruliðahreyfingar Sandínista sem tók völdin í Níkaragva í byltingu árið 1979.
25. nóvember 2016 Flugslysið í Smólensk Í þættinum er fjallað um það þegar þota sem flutti Lech Kaczynski, forseta Póllands, og fleiri pólsk fyrirmenni fórst við lendingu í Smólensk í Rússlandi í apríl 2010. Allir um borð fórust og slysið varð pólsku þjóðinni mikið reiðarslag.
2. desember 2016 Dauði Tasmaníutígursins Í þættinum er fjallað um sorgleg örlög Tasmaníutígursins, einstakrar rándýrategundar sem var einungis að finna á eyjunni Tasmaníu við Ástralíu. Varla leið öld frá því að Evrópumenn hófu landnám á Tasmaníu þar til tígurinn var útdauður, fórnarlamb ofveiða og rógburðar manna.

Þátturinn var endurfluttur 13. ágúst 2018.

9. desember 2016 Suður-Kórea Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Kóreu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Meðal annars er fjallað um einræðisstjórn hershöfðingjans Park Chung-hee, sem er faðir núverandi forseta Park Geung-hye. Morðin á hershöfðingjanum og konu hans gerðu það að verkum að dóttir þeirra komst í kynni við spilltan leiðtoga sértrúarsöfnuðar, en uppljóstranir um tengsl forsetann við söfnuðinn hefur nú orðið kveikjan að mestu fjöldamótmælum í sögu Suður-Kóreu.
6. janúar 2017 Taívan Í þættinum er fjallað um stormasama sögu eyríkisins Taívans eða Lýðveldsins Kína eins og það heitir formlega, og samskipti þess við risavaxinn nágranna sinn, Alþýðulýðveldið Kína.
13. janúar 2017 Hakkarar Í þættinum er fjallað um nokkur tilvik þess að hakkar og tölvuþrjótar hafi látið til sín taka á alþjóðavettvangi, stundað njósnir og jafnvel valdið milliríkjadeilum. Meðal annars er fjallað um ötula leit bandarísks kerfisumsjónarmanns að dularfullum hakkara árið 1986, umfangsmikla tölvuárás á Eistland og háþróaðan tölvuorm sem herjaði á kjarnorkuver Írana.
20. janúar 2017 Scandinavian Star Í þættinum er fjallað um eldsvoðann í ferjunni Scandinavian Star í apríl 1990. Eldur kviknaði um borð í skipinu á siglingu frá Ósló til Frederikshavn með þeim afleiðingum að 159 manns létu lífið. Nýverið birtu fjölmiðlar í Noregi og Danmörku upplýsingar úr rannsókn norskrar þingnefndar á eldsvoðanum sem varpa nýju ljósi á málið.
27. janúar 2017 Hafez al-Assad Í þættinum er fjallað um ævi Hafez al-Assad, forseta Sýrlands frá 1970 til 2000, og föður núverandi Sýrlandsforseta Bashars al-Assad, sem ólst upp í sárri fátækt í afskekktu fjallaþorpi í norðanverðu Sýrlandi, en endaði sem miskunnarlaus einræðisherra.
3. febrúar 2017 Bashar al-Assad Í þættinum er fjallað um ævi og fjölskyldu Bashars al-Assad, sem tók við embætti forseta Sýrlands af föður sínum árið 2000.
10. febrúar 2017 Rohingja-þjóðin í Búrma Í þættinum er fjallað um sögu Rohingja-þjóðarinnar í Búrma. Rohingjar hafa lengi átt undir högg að sækja í heimalandi sínu, sætt ofsóknum og Rohingjar eru ríkisfangs- og réttindalausir. Búrmíski herinn hefur undanfarnar vikur og mánuði framið fjöldamorð á Rohingjum og fleiri voðaverk og stjórnvöld í Búrma sætt harðri gagnrýni frá alþjóðasamfélaginu.
24. febrúar 2017 Japanskir Bandaríkjamenn í fangabúðum Eftir árás japanska hersins á bandarísku flotastöðina Pearl Harbor árið 1941 voru nærri 120 þúsund Bandaríkjamenn af japönskum ættum gerðir brottrækir af heimilum sínum á vesturströnd Bandaríkjanna, og sendir í fangabúðir þar sem þeir dvöldu nær öll stríðsárin. Fæstir fanganna höfðu nokkuð til saka unnið annað en að eiga ættir að rekja til óvinaríkisins Japan, og stór hluti þeirra voru bandarískir ríkisborgarar.
3. mars 2017 Andrée-leiðangurinn Í þættinum er fjallað um Andrée-leiðangurinn, tilraun þriggja Svía til að komast á Norðurpólinn í loftbelg árið 1897, tilraun sem endaði með ósköpum, þegar loftbelgurinn brotlendi og þremenningunum biðu margra mánaða hrakningar á heimskautaísnum.
10. mars 2017 Jemen I Í þættinum er fjallað um sögu Jemens. Jemen er í dag stríðshrjáð og sárafátækt, en fyrr á öldum var það eitt mesta menningarsvæði Arabíuskagans, og miðstöð verslunar og viðskipta, sem ótal stórveldi gerðu tilraun til þess að leggja undir sig öldum saman, en yfirleitt með litlum árangri.
17. mars 2017 Jemen II Síðari þáttur um sögu Jemens.
24. mars 2017 Nikolai Vavilov Í þættinum er fjallað um rússneska grasafræðinginn Nikolai Vavilov, sem vann brautryðjendarannsóknir á korni og öðrum nytjajurtum á fyrstu áratugum tuttugustu aldar og byggði upp stærsta fræbanka heims, en lenti síðar á ferlinum í hatrammri glímu við andvísindaleg öfl í hinum nýstofnuðu Sovétríkjum.
31. mars 2017 Robert Mugabe Í þættinum er fjallað um ævi Roberts Mugabe, forseta Simbabve.
7. apríl 2017 Téténía Í þættinum er fjallað um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum og téténsku þjóðarinnar og aldalangrar baráttu hennar við risavaxna granna sinn til vesturs, Rússland.
21. apríl 2017 Téténía II Í þættinum er fjallað áfram um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum, sér í lagi seinni innrás Rússlands í Téténíu 1999, aðdraganda hennar og afleiðingar.
28. apríl 2017 Haymarket Í þættinum er fjallað um ástæðu þess að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur einmitt 1. maí, blóðbaðið á Haymarket-torgi í Chicago árið 1886.
5. maí 2017 Sarajevó-handritið Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu við að bjarga því frá eyðileggingu.
12. maí 2017 Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra, nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef Stalín Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn.

Þátturinn var áður á dagskrá í maí í fyrra.

19. maí 2017 John F. Kennedy I Í þættinum er fjallað um John F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en senn verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans, 29. maí 1917. Í þessum þætti er fjallað um rætur hinnar nafntoguðu Kennedy-ættar og æsku forsetans sáluga.
26. maí 2017 John F. Kennedy II Í þættinum er fjallað áfram um ævi Johns F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en þann 29. maí verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Í þessum þætti er fjallað um upphafið að stjórnmálaferli Kennedys, tíma hans á þingi og kosningabaráttuna 1960.
9. júní 2017 Sex daga stríðið Í þættinum er fjallað um sex daga stríð Ísraels og Egyptalands og annarra Arabaríkja í júní 1967, fyrir hálfri öld.
16. júní 2017 Hundar í kapphlaupi við dauðann Veturinn 1924-1925 ógnaði barnaveikifaraldur afskekktri byggð í Norður-Alaska. Byrgðir bæjarlæknisins af mótefni við barnaveiki voru fljótt á þrotum, og aðeins ein leið fær til að flytja meira mótefni til bæjarins: með hundasleða. Á nokkrum janúardögum unnu hugdjarfir menn og hundar því ótrúlegt afrek og fluttu viðkvæmt mótefnið þúsund kílómetra leið í nístingskulda og kafaldsbyl.
23. júní 2017 Taiping-uppreisnin Í þættinum er fjallað um Taiping-uppreisnina í Kína um miðja nítjándu öld, þegar maður sem taldi sig son Guðs leiddi milljón manna her gegn Kínakeisara, með þeim afleiðingum að minnsta kosti tuttugu milljón manns týndu lífi.
18. ágúst 2017 Farúk Egyptalandskonungur Sumarið 1952 rændu herforingjar, með Gamal Abdúl Nasser í broddi fylkingar, völdum í Egyptalandi. Þeir steyptu þá af stóli konungi landsins, Farúk. Farúk er í dag helst minnst fyrir yfirgengilega eyðslusemi, fjárhættuspil, kvennafar og ofát. Hann lifði hátt bæði sem konungur, og í útlegð í Evrópu á síðustu árum ævinnar, og át sig á endanum í hel.
25. ágúst 2017 Bandarískir nasistar Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn sem fyrirmynd.
1. september 2017 Angela Merkel Í þættinum er fjallað um einn áhrifamesta stjórnmálamann samtímans, Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Sagt er frá uppvexti hennar sem prestsdóttir í Austur-Þýskalandi, ferli í eðlisfræðirannsóknum, kynni af leyniþjónustunni Stasi og undraverðs uppgangs hennar í pólitík eftir fall Berlínarmúrsins.
8. september 2017 Stofnun Norður-Kóreu Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu eftir seinni heimsstyrjöld, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-Sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins.

Þátturinn var áður á dagskrá í september 2016.

15. september 2017 Saga risapöndunnar Í þættinum er fjallað um eitt umtalaðasta dýr dýraríkisins, hinn svarthvíta pandabjörn. Í þessum fyrri þætti af tveimur um sögu pöndunnar er fjallað meðal annars um það þegar vestrænir menn komust fyrst í kynni við pöndur, fyrsta pönduæðið, þegar bandarísk kona veiddi fyrst Vesturlandabúa lifandi pönduhún og fór með hann til New York, svo og fyrstu dæmi þess að pöndur væru fluttar milli landa í pólitískum tilgangi.
22. september 2017 Saga risapöndunnar II Síðari þáttur af tveimur um sögu pandabjarna. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um einn frægasta pandabjörn tuttugustu aldar, Chi-Chi, sem flæktist inn í kalda stríðið, heimsókn Richards Nixon Bandaríkjaforseta til Kína og pandabirnina sem komu í kjölfarið til Bandaríkjanna.
29. september 2017 Min Kóreudrottning Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kórea varð japönsk nýlenda í upphafi tuttugustu aldar og endalok hins aldagamla kóreska konungsríkis. Þar kemur við sögu síðasta drottning Kóreu, Min, ein merkilegasta kona kóreskrar sögu, sem komst til valda í karllægu ríki með bæði kænsku og hörku, reyndi að standa uppi í hárinu á Japönum en galt að lokum fyrir með lífi sínu. Umsjón: Vera Illugadóttir.
13. október 2017 Kúrdar í Írak Í þættinum er fjallað um baráttu Kúrda í Írak fyrir sjálfstæðu ríki. Kúrdískir uppreisnarmenn háðu tvö mannskæð stríð við írösk stjórnvöld á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar, en það voru jafnframt miklir umbrotatímar í sögu Íraks.
20. október 2017 Xi Jinping Í þættinum er fjallað um ævi eins valdamesta manns heims, Xi Jinping, formanns kínverska kommúnistaflokksins og forseta Kína. Xi var af kommúnískum aðalsættum en varði þó táningsárum sínum við erfiðisvinnu í helli í afskekktri sveit.
27. október 2017 Gíslataka í leikhúsi í Moskvu Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því að téténskir hryðjuverkamenn tóku um 900 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu. Í þættinum er atburðarásinni þessa októberdaga í Moskvu 2002 lýst. Umsátri um leikhúsið lauk með harmleik og dauða meira en hundrað gísla, og enn í dag er spurningum ósvarað um málið.

Þátturinn var endurfluttur 3. janúar 2020.

1. desember 2017 Kim Jong-un Í þættinum er fjallað um Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, og þann þriðja úr Kim-ættinni sem fer með æðstu völd þar í landi. Farið er það litla sem vitað er með vissu um æsku og uppvöxt Jong-un og fyrstu ár hans við völd.
8. desember 2017 Kúrú Í þættinum er fjallað um dularfullan og ólæknandi sjúkdóm sem herjaði á frumstæða fjallaþjóð í Nýju Gíneu um miðbik tuttugustu aldar, og bandarískan vísindamann sem leysti ráðgátuna um sjúkdóminn, fékk Nóbelsverðlaunin fyrir en reyndist síðar hafa framið alvarlegan glæp.
15. desember 2017 Jerúsalem I Í þættinum er fjallað um sögu Jerúsalem frá því til forna og fram að aldamótum tuttugustu aldar, en á því langa tímabili skiptust á skin og skúrir í sögu borgarinnar helgu, sem ýmist var barist um af heilagri sannfæringu eða hún afskipt og afskekkt.
22. desember 2017 Jerúsalem II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu helgu borgarinnar Jerúsalem. Í þessum þætti er fjallað um sögu borgarinnar á tuttugustu öld og fram til stofnunar Ísraelsríkis. Fyrstu árin laut borgin harðri stjórn Tyrkja sem beittu borgarbúa miklu harðræði. Síðar tóku Bretar við borginni og þá fór að hitna verulega í kolunum milli trúarhópa og þjóðarbrota í borginni.
29. desember 2017 Kettir Í þættinum er fjallað um sögu sambúðar katta og manna. Fjallað er meðal annars um nýjustu kenningar um upphaf kattahalds, kattatrú Forn-Egypta, hryllilegar kattapyntingar sem tíðkuðust til skemmtunar í Evrópu fyrir örfáum öldum og fyrsta köttinn í geimnum.
5. janúar 2018 Íranska byltingin Í þættinum er fjallað um byltinguna í Íran 1978-1979, þegar írönsk alþýða reis upp gegn keisaranum Mohammed Reza Pahlavi, og íhaldssamir íslamskir klerkar komust að lokum til valda.
12. janúar 2018 Kongó Leópolds konungs Í þættinum er fjallað um sögu Fríríkisins Kongó, gríðarstórrar einkanýlendu sem Leópold II Belgakonungur kom sér upp í miðri Afríku undir lok nítjándu aldar. Innfæddir Kongómenn máttu þola þá hryllilega glæpi, þrælkunarvinnu og arðrán en konungurinn græddi á tá og fingri.
19. janúar 2018 Kongó-krísan Í þættinum er fjallað áfram um sögu Kongó í miðri Afríku. Landið fékk sjálfstæði frá Belgum í júní 1960, en aðeins örfáum vikum síðar var landið allt í algjörri upplausn.
26. janúar 2018 Kongóstyrjaldirnar miklu Í þriðja þætti um sögu Kongó í Mið-Afríku er fjallað um valdatíð einræðisherrans Mobutu Sese Seko, sem nefndi landið Saír og gerði það gjaldþrota með eyðslusemi sinni, og vargöldina sem tók við af honum, þegar grannríki Kongó réðust inn í landið og komu af stað einni mannskæðustu styrjöld síðari ára.
2. febrúar 2018 Geimskutlan Kólumbía Fyrir fimmtán árum, 1. febrúar 2003, fórst geimskutla bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, Kólumbía, þegar hún var á leið til lendingar í Flórída að loknum sextán daga leiðangri. Þegar örfáar mínútur voru til lendingar splundraðist skutlan í tugþúsund mola yfir suðvestanverðum Bandaríkjunum og allir um borð, sjö geimfarar, fórust. Í þættinum er fjallað um hinstu ferð Kólumbíu og rannsóknina á tildrögum slyssins sem á eftir kom.
9. febrúar 2018 Kjarnorkusölumaðurinn Í þættinum er fjallað um mann sem hefur verið kallaður hinn eini sanni sölumaður dauðans, og hættulegasti maður heims: pakistanska kjarnorkuvísindamanninn AQ Khan, sem smíðaði fyrstu kjarnorkusprengja Pakistans með stolinni tækni og seldi svo ríkjum á borð við Íran og Norður-Kóreu kjarnorkutækni.
16. febrúar 2018 Korean Air 858 29. nóvember 1987 hvarf suðurkóresk farþegaþota á leið frá Bagdad til Seoul skyndilega í hafið á miðri leið og 115 manns um borð fórust. Undirbúningur stóð þá sem hæst fyrir fyrstu Ólympíuleika Suður-Kóreu sem fara áttu fram í Seoul sumarið 1988. Grunur vaknaði því fljótt hvort óvinaríkið Norður-Kórea hefði með einhverjum hætti grandað þotunni til að spilla fyrir Ólympíuleikunum.
23. febrúar 2018 Benjamín Netanyahu Í þættinum er fjallað um uppvöxt Benjamíns Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og leið hans til valda. Netanyahu eða „Bíbí“ eins og hann er gjarnan kallaður ólst að stórum hluta upp í Bandaríkjunum, og tók þar sín fyrstu skref á braut stjórnmála í ísraelsku utanríkisþjónustunni. Hann hefur verið umdeildur frá upphafi ferilsins en ekki síst var það hörð andstaða við Óslóar-friðarsamningana sem kom honum í forsætisráðherrastólinn í fyrsta skiptið 1995.
2. mars 2018 Jedwabne Í þættinum er fjallað um fjöldamorð á Gyðingum í pólska smábænum Jedwabne í miðri seinni heimsstyrjöld, 10. júlí 1941, og umræðu sem kviknaði í kjölfarið af útgáfu bókar um fjöldamorðin í Póllandi, sextíu árum síðar.
9. mars 2018 Umsátrið í Waco 28. febrúar 1993 ætluðu útsendarar Áfengis-, tóbaks- og skotvopnaeftirlits Bandaríkjanna að kanna grunsemdir um að liðsmenn fámenns kristins trúarsafnaðar, sem hélt til á búgarði fyrir utan borgina Waco í Texas, hefðu ólögleg skotvopn undir höndum. Aðgerðin endaði með skotbardaga og blóðbaði. Umsátur bandarísku alríkislögreglunnar um búgarðinn átti svo eftir að standa í fimmtíu daga.
16. mars 2018 Alexander Litvinenko Í þættinum er fjallað um mál Rússans Alexander Litvinenko, fyrrverandi leyniþjónustumanns og andstæðings rússneskra stjórnvalda, sem lést í Lundúnum í nóvember 2006 eftir að honum var byrlað geislavirkt efni í tebolla.
23. mars 2018 Mannæturnar í Tsavo Í þættinum er fjallað um tvö ljón, sem herjuðu á verkamenn sem lögðu járnbraut fyrir breska heimsveldið í Kenía undir lok nítjándu aldar, og tilraunir bresks herforingja til að ráða niðurlögum ljónanna.
6. apríl 2018 Alberto Fujimori Í þættinum er fjallað um Alberto Fujimori, forseta Perú frá 1990 til ársins 2000. Fujimori, sonur japanskra innflytjenda til Perú, naut mikillar hylli á fyrstu árum valdatíðar sinnar, en undir lok hennar kom margt misjafnt í ljós um stjórnarhætti hans.
13. apríl 2018 Timbúktú-handritin Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt að forða þúsundum ómetanlegra fornhandrita frá glötun.
27. apríl 2018 Queen Mary og Dönsku Vestur-Indíur Í þættinum er fjallað um sögu Dönsku Vestur-Indía, nýlendu Danmerkur í Karíbahafi, og Queen Mary Thomas, svarta verkakonu sem leiddi blóðuga uppreisn gegn dönskum yfirvöldum á eyjunum 1878, en nýlega var reist stytta af henni í Kaupmannahöfn.
4. maí 2018 Byltingarmennirnir sem tortímdu sjálfum sér Í þættinum er fjallað um róttækan hóp vinstrimanna í Japan, Sameinaða rauða herinn. Í árslok 1971 héldu liðsmenn hópsins í afskekktan fjallakofa til að stunda heræfingar, en dvöl þeirra þar leystist fljótt upp í ofbeldi og blóðsúthellingar.
11. maí 2018 Estonia Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys í sögu Evrópu á friðartímum, þegar eistneska farþegaferjan MS Estonia sökk í illviðri á Eystrasaltinu á leið til Stokkhólms í september 1994.

Þátturinn var endurfluttur 4. október 2019.

8. júní 2018 Morðið á Robert F. Kennedy Í þættinum er fjallað um morðið á bandaríska stjórnmálamanninum Robert F. Kennedy, sem var skotinn til bana á hóteli í Los Angeles aðfaranótt 5. júní 1968, þegar hann sóttist eftir tilnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, og um ævi Kennedys og morðingja hans, Palestínumannsins Sirhan Sirhan.
15. júní 2018 „Engillinn“ Ashraf Marwan I Í þættinum er sögð lygileg saga Egyptans Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt mesti landráðamaður í sögu Egyptalands, sem seldi Ísrael ríkisleyndarmál árum saman. Fyrri þáttur af tveimur.
22. júní 2018 „Engillinn“ Ashraf Marwan II Seinni þáttur um Egyptann Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt njósnari fyrir ísraelsku leyniþjónustuna um árabil. Í þessum þætti er fjallað um þátt Marwans í Yom Kippur-stríðinu 1973 og dularfullan dauða hans í Lundúnum áratugum síðar.
29. júní 2018 Spillingarsaga FIFA I Í þættinum er fjallað um sögu Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, starf þess sem áratugum saman hefur einkennst af mútum og spillingu, og upphaf rannsóknar bandarísku alríkislögreglunnar á fjármálum sambandsins, sem komst í heimsfréttirnar 2015. Fyrri þáttur af tveimur.
6. júlí 2018 Spillingarsaga FIFA II Í þættinum er fjallað áfram um rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar og skattstofu á vafasömum fjármálum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Síðari þáttur af tveimur.
24. ágúst 2018 Thomas Quick II Þátturinn er annar af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
31. ágúst 2018 Thomas Quick III Þátturinn er sá síðasti um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
7. september 2018 Emmett Till Þátturinn fjallar um einn af alræmdustu glæpum bandarískrar sögu, morðið á Emmett Till, fjórtán ára svörtum pilti í Mississippi árið 1955.

Þátturinn var endurfluttur 5. júní 2020.

14. september 2018 Dauðahafshandritin I Í þættinum er fjallað um eina merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, þegar ungur hirðingjapiltur fann forn handrit falin í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu.
28. september 2018 Dauðahafshandritin II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um eina af merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, forn handrit sem ungur hirðingjapiltur fann í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu 1946. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir sýrlensks biskup til að selja handritin, hvernig þau rötuðu á smáauglýsingasíðu Wall Street Journal og blekkingarleik Ísraela til að komast yfir þau.
5. október 2018 Oxycontin Í þættinum er fjallað um verkjalyfið Oxycontin, sem hratt af stað ópíóíðafaraldrinum sem leikið hefur Bandaríkin grátt á síðustu árum, og óheiðarlega markaðsetningu framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu.
19. október 2018 1MDB Í þættinum er fjallað um eitt umfangsmesta fjársvikamál sem uppgötvast hefur, skipulagðan þjófnað forsætisráðherra Malasíu og ungs glaumgosa á milljörðum dollara úr opinberum fjárfestingarsjóði malasíska ríkisins.
26. október 2018 Konungar Sádi-Arabíu Í þættinum er fjallað um sögu konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu.
2. nóvember 2018 Herforingjastjórnin í Brasilíu Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Brasilíu 1964 og einræðisstjórn herforingja sem fylgdi fram til ársins 1985.
9. nóvember 2018 Jim Jones og Peoples Temple I Í þættinum er fjallað um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu sjálfsmorð að áeggjan leiðtogans í bækistöðvum safnaðarins í Gvæjana.
16. nóvember 2018 Jim Jones og Peoples Temple II Í þættinum er fjallað áfram um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu sjálfsmorð að áeggjan leiðtogans í bækistöðvum safnaðarins í Gvæjana.
30. nóvember 2018 Ota Benga Í þættinum er fjallað um kongóskan karlmann, Ota Benga, sem var hafður til sýnis með öpum í dýragarðinum í Bronx í New York við upphaf tuttugustu aldar.
7. desember 2018 Upphafsár Ottómanveldisins Í þættinum er fjallað um tilurð hins tyrkneska Ottómanveldis á Anatólíuskaga í upphafi fjórtándu aldar og fyrstu herferðum Ottóman-Tyrkja gegn Býsansríki og Serbum á Balkanskaga.
14. desember 2018 Fall Konstantínópel Í þættinum er fjallað um árás og umsátur Ottóman-Tyrkja, undir stjórn soldánsins unga Mehmet 2., á höfuðborg Býsansveldis, Konstantínópel, vorið 1453.
21. desember 2018 Lockerbie Í þættinum er fjallað um hryðjuverkaárás 21. desember 1988, sem kennd er við skoska smábæinn Lockerbie.
11. janúar 2019 Landvinningar Tyrkjasoldána Þátturinn er sá þriðji um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Í þessum þætti er fjallað um síðari hluta valdatíðar Mehmets 2., eftir að hann sigraði Konstantínópel 1453, og eftirmenn hans Bajesíd 2. og Selím grimma, sem lagði undir sig stóran hluta Miðausturlanda.
18. janúar 2019 Súleiman mikli og Roxelana Í þættinum er fjallað um valdatíð Súleimans mikla, soldáns tyrkneska Ottómanveldisins 1520-1566, og um Roxelönu, sem var ambátt í kvennabúri soldáns sem fangaði hjarta soldánsins og varð smátt og smátt ein valdamesta kona sinna tíma.
25. janúar 2019 Ebólufaraldurinn 1976 Í þættinum er fjallað um fyrstu tilfelli sjúkdómsins ebólu sem vísindamenn rannsökuðu, í afskekktu þorpi í Saír í Mið-Afríku 1976.
1. febrúar 2019 George Soros Í þættinum er fjallað um ævi auðjöfursins umdeilda, George Soros.
8. febrúar 2019 Landnám Venesúela Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Ameríkulandsins Venesúela eftir að Spánverjar hófu að leggja landið undir sig í byrjun sextándu aldar.
15. febrúar 2019 Gröf Tútankamons Í þættinum er fjallað um breska fornleifafræðinginn Howard Carter, sem árið 1922 uppgötvaði grafhvelfingu drengfaraósins Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi.
22. febrúar 2019 Pitcairn-eyja Í þættinum er fjallað um sögu afskekktrar smáeyju í Kyrrahafi, Pitcairn. Uppreisnarmenn af breska skipinu Bounty settust að á eyjunni árið 1790. Tveimur öldum síðar urðu afkomendur þeirra alræmdir þegar fjöldi karla á eyjunni var ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn börnum.
1. mars 2019 Tyrkneska kvennaveldið I Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Á ofanverðri sextándu öld fór í hönd tímabil þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar við hirðina og beittu áhrifum sínum óspart.
8. mars 2019 Tyrkneska kvennaveldið II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um það tímabil í sögu Tyrkjaveldis þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar við hirðina og beittu áhrifum sínum óspart, sér í lagi er fjallað um ævi einnar áhrifamestu konu tyrkneskrar sögu.
15. mars 2019 Maurice Hilleman Í þættinum er fjallað um Maurice Hilleman, bandarískan vísindamann sem þróaði meira en 40 bóluefni á ferlinum, fleiri en nokkur annar, og vann meðal annars að bóluefninu gegn mislingum. Hann er sagður hafa með lífsverki sínu bjargað fleiri mannslífum en nokkur annar vísindamaður.
22. mars 2019 Chagos-eyjar Í þættinum er fjallað um Chagos-eyjar, eyjaklasa í miðju Indlandshafi. Íbúar á eyjunum voru fluttir þaðan nauðugir á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar svo hægt væri að byggja þar bandaríska herstöð, og hafa þeir og afkomendur þeirra barist fyrir því að fá að snúa aftur æ síðan.
5. apríl 2019 Kapphlaupið á Suðurpólinn I Fyrsti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrirrennara Scotts í heimskautakönnun, fyrri leiðangur hans á Suðurskautslandið og undirbúning þess næsta.
12. apríl 2019 Kapphlaupið á Suðurpólinn II Annar þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um keppinaut Scotts á Suðurpólinn, Norðmanninn Roald Amundsen, og fyrri leiðangra hans og annarra Norðmanna á norðurslóðir.
19. apríl 2019 Kapphlaupið á Suðurpólinn III Þriðji þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrsta sumar Scotts og leiðangursmanna á Suðurskautinu og undirbúning þeirra fyrir ferðina á pólinn. Þá er fjallað um „versta ferðalag heims“, þegar nokkrir Bretar fóru í leit að mörgæsareggjum um hávetur.
3. maí 2019 Kapphlaupið á Suðurpólinn IV Fjórði og síðasti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Robert Falcon Scott á Suðurskautslandið. Í þessum þætti er fjallað um hið eiginlega kapphlaup hans og Norðmannsins Roald Amundsen á Suðurpólinn, og dapurleg endalok breska leiðangursins.
10. maí 2019 Sarajevo-handritið Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu við að bjarga því frá eyðileggingu.
24. maí 2019 Saga Súdans I Í þættinum er fjallað um sögu Afríkuríkisins Súdan fram á 20. öld, meðal annars um það hvernig Egyptar sölsuðu þetta stóra land undir sig og baráttu þeirra og Breta við súdanskan spámann og uppreisnarleiðtoga.
14. júní 2019 Saga Súdans II Í þættinum er fjallað um stormasama nútímasögu Súdans frá sjálfstæði 1956 og fram að valdaráni herforingjans Omars al-Bashir 1989.
28. júní 2019 Saga Súdans III Síðasti þáttur af þremur um sögu Afríkuríkisins Súdan. Í þessum þætti er fjallað um lokaár borgarstyrjaldarinnar í suðurhluta landsins, áhrif olíuvinnslu á átökin og klofning landsins, sem og stríðið í Darfúr-héraði í vestanverðu Súdan.
17. ágúst 2019 Thomas Quick I Þátturinn er sá fyrsti af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
6. september 2019 Boris Johnson Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Borisar Johnsons, forsætisráðherra Bretlands.
13. september 2019 Amelia Earhart Í þættinum er fjallað um bandaríska flugfrömuðinn Ameliu Earhart, og hvarf hennar á flugi yfir Suður-Kyrrahafi 1937.
20. september 2019 Jean-Bédel Bokassa Í þættinum er fjallað um Jean-Bédel Bokassa, herforingja sem tók völdin í Mið-Afríkulýðveldinu á sjöunda áratug síðustu aldar og lét svo krýna sig keisara með miklum tilkostnaði.
27. september 2019 Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu Í þættinum er fjallað um vopnaða andspyrnuhreyfingu ungra Gyðinga í gettóinu í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld.
11. október 2019 Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu II Í þættinum er haldið áfram með sögu andspyrnumanna Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld. Í þessum þætti er fjallað um afdrif Gyðinganna sem flúðu út í skóg eftir að gettóið í Vilníus var lagt niður.
1. nóvember 2019 Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu III Þetta er þriðji og síðasti þáttur um andspyrnumenn Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld, og leiðtoga þeirra, skáldið Abba Kovner. Í stríðslok varð hann heltekinn af hugmyndinni um að hefna fyrir glæpi Þjóðverja gegn Gyðingum, auga fyrir auga.
8. nóvember 2019 Andaman-eyjar Í þættinum er fjallað um sögu Andaman-eyjaklasans í Indlandshafi, grimmilega fanganýlendu sem Bretar komu þar upp á nítjándu öld og afdrif frumbyggja eyjarinnar í kjölfarið.
22. nóvember 2019 Stórvesírinn Í þættinum er fjallað um sögu tyrkneska Ottómanveldisins um miðbik sautjándu aldar, og sér í lagi um Mehmet Köprülü, miskunnarlausan stórvesír sem sölsaði undir sig öll völd í ríkinu.
29. nóvember 2019 Úígúrar Í þættinum er fjallað um sögu Úígúra, tyrkneskumælandi múslimaþjóðar í norðvestanverðu Kína, sem lengi hefur sætt ofsóknum af hendi kínverskra stjórnvalda.
6. desember 2019 Bhopal-slysið Bhopal-slysið var eitt skelfilegasta umhverfisslys sögunnar. Aðfaranótt 3 desember 1984 láku 30 þúsund tonn af eiturgasi frá verksmiðju Union Carbide sem framleiddi skordýraeitur.
13. desember 2019 Shapira-málið Í þættinum er fjallað um mál sem skók fornleifafræðaheiminn í Evrópu á ofanverðri nítjándu öld. Forngripasali frá Jerúsalem birtist þá í Lundúnum og sagðist hafa í fórum sínum þrjú þúsund ára gamalt eintak af fimmtu Mósebók. Nokkru síðar var forngripasalinn látinn og handritin hans horfin.
10. janúar 2020 Bougainville Eyjan Bougainville tilheyrir Papúa Nýju Gíneu, en eyjarskeggjar samþykktu nýlega í þjóðaratkvæðagreiðslu að lýsa yfir sjálfstæði. Saga eyjunnar er blóði drifin, en stríð brast þar út eftir að námafélagið Rio Tinto hóf þar umfangsmikið kolanám á sjöunda áratug síðustu aldar.
17. janúar 2020 Korean Airlines flug 007 Haustið 1983 skaut sovésk orrustuþota niður suðurkóreska farþegaþotu, Korean Airlines flug 007 frá New York til Seúl, með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.
14. febrúar 2020 Morðið á Rafik Hariri I Í þættinum er fjallað um sprengjutilræði sem varð fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, Rafik Hariri, að bana árið 2005 og um borgarastyrjöldina sem geisaði í Líbanon í fimmtán ár frá árinu 1975.
21. febrúar 2020 Morðið á Rafik Hariri II Seinni þáttur um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, en hann lét lífið í bílsprengjuárás í miðborg Beirút um miðjan febrúar 2005. Í þessum síðari þætti er fjallað um feril Hariris eftir að borgarastyrjöldinni í Líbanon lauk, og umdeilda rannsóknina á dauða hans.
28. febrúar 2020 Bernie Sanders Í þættinum er fjallað um bandaríska öldungadeildarþingmanninn og forsetaframbjóðandann Bernie Sanders - æsku hans í Brooklyn, háskólaár og baráttustörf í Chicago og upphaf stjórnmálaferilsins í Vermont.
6. mars 2020 Lindbergh-barnið Í þættinum er fjallað um það þegar 20 mánaða gömlum syni bandaríska flugkappans Charles Lindbergh var rænt af heimili þeirra í New Jersey í mars 1932. Við tók margra ára lögreglurannsókn sem fangaði athygli heimsbyggðarinnar.
20. mars 2020 Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, I Fyrri þáttur um ferð þýskra göngugarpa á fjallið Nanga Parbat í Himalaja-fjöllum árið 1934. Fjallgöngumennirnir nutu stuðnings stjórnvalda í Þýskalandi nasismans og ætluðu að sanna yfirburði þýskra fjallgöngumanna. Fjallið er það níunda hæsta í heimi og reyndist ekkert lamb að leika sér við.
27. mars 2020 Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, II Seinni þáttur um leiðangur þýskra göngumanna á fjallið Nanga Parbat í Himalajafjöllum árið 1934. Þegar göngumennirnir, ásamt nepölskum burðarmönnum, voru komnir langleiðina á tindinn gerði mikið illviðri og mennirnir þurftu að haska sér niður, sem reyndist hægara sagt en gert við slíkar aðstæður.
3. apríl 2020 Bókaþjófurinn í Kaupmannahöfn Í þættinum er fjallað um stórtækasta bókaþjóf danskrar sögu, sem herjaði á Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn á áttunda áratugnum og stal þaðan mörg þúsund bókum. Málið var ekki leyst fyrr en áratugum síðar.
17. apríl 2020 Joe Biden Í þættinum er fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf stjórnmálaferils Joe Bidens, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og fambjóðanda til forsetaefnis Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum 2020.
1. maí 2020 Túrkmenistan Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Túrkmenistan á tuttugustu öld og sér í lagi valdatíð hins sérvitra einræðisherra Saparmurat Niyazov, sem kallaði sig Turkmenbashi, „fremstan Túrkmena“.
8. maí 2020 Typhoid Mary Í þættinum er fallað um Mary Mallon, matselju í New York sem smitaði á sjötta tug manna af taugaveiki í upphafi 20. aldar, án þess að þó að sýna nokkur einkenni veikinnar sjálf.
15. maí 2020 Tenerife-slysið Í þættinum er fjallað um mannskæðasta flugslys sögunnar, þegar röð tilviljana og mistaka leiddi til þess að tvær Boeing 747-risaþotur skullu saman á flugvellinum Los Rodeos á Tenerife árið 1977.
29. maí 2020 Hong Kong og fyrra ópíumstríðið Í þættinum er fjallað um sögu Hong Kong, fyrra ópíumstríð Kínverja og Breta og tildrög þess að Bretar lögðu undir sig Hong Kong.
12. júní 2020 Morðið á Olof Palme og Skandiamaðurinn Í þættinum er fjallað um Stig Engström, sænskan auglýsingateiknara sem nýverið var sakaður um að vera morðingi Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í febrúar 1986.
28. ágúst 2020 Alexander Lukasjenka Í þættinum er fjallað um ævi og feril Alexanders Lukasjenka, forseta Hvíta-Rússlands til meira en aldarfjórðungs.
4. september 2020 Dauðinn á Norðurslóðum Í þættinum er fjallað um Pólaris-leiðangur bandaríska könnuðarins Charles Francis Hall, sem vildi freista þess að komast fyrstur manna á Norðurpólinn 1871, en lést á leiðinni - á dularfullan hátt.
11. september 2020 McMartin-málið Í þættinum er fjallað um eitt lengsta og dýrasta dómsmál Bandaríkjanna. Árið 1983 var starfsfólk leikskóla í úthverfi Los Angeles sakað um að hafa níðst á tugum barna í sinni umsjá, og sögð félagar í leynilegum sértrúarsöfnuði djöfladýrkenda.
18. september 2020 Ester Blenda Nordström I Í þættinum er fjallað Ester Blendu Nordström (1891-1948), frumkvöðul í blaðamennsku í Svíþjóð. Meðal annars villti hún á sér heimildir og réð sig sem vinnukonu á bóndabæ til að fjalla um aðbúnað kvenna í sænskum landbúnaði, og ferðaðist um með Sömum í Norður-Svíþjóð.
25. september 2020 Ester Blenda Nordström II Annar þáttur af tveimur um Ester Blendu Nordström, brautryðjenda í rannsóknarblaðamennsku í Svíþjóð á fyrri hluta tuttugustu aldar. Í þessum síðari þætti er fjallað um feril Esterar eftir að hún snéri heim af Samaslóðum í Norður-Svíþjóð, um þátt hennar í finnska borgarastríðinu, ferðalög um Suður- og Norður-Ameríku, langdvöl á Kamtsjatka-skaga og forboðna ást.
2. október 2020 Nagorno-Karabakh Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasusfjöllum sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna allt frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh, sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og nú er enn barist um héraðið.
9. október 2020 Voulet-Chanoine-leiðangurinn Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra franskra herforingja frá Senegal að Tsjad-vatni í vestanverðri Afríku, með mörg hundruð manna lið, í lok 19. aldar. Ferð þeirra einkenndist af grimmd og ofbeldi í garð innfæddra sem urðu á vegi þeirra, sem og annarra Frakka.
16. október 2020 Rafherbergið Í þættinum er fjallað um Rafherbergið, glæsilegan sal klæddan rafi sem Friðrik 1. Prússakonungur gaf Pétri mikla Rússakeisara í byrjun 18. aldar. Klæðningarnar og aðrir munir úr herberginu hurfu í seinni heimsstyrjöld og hafa aldrei fundist, þrátt fyrir mikla leit.
30. október 2020 Mary Anning Í þættinum er fjallað um Mary Anning, breska almúgakonu sem var uppi í byrjun nítjándu aldar og er stundum kölluð móðir steingervingafræðinnar, en hún leitaði og fann steingervinga af mörgum áður óþekktum forsögulegum dýrategundum í fjörunni við heimili sitt í Suður-Englandi.
6. nóvember 2020 Þjófnaðurinn á Monu Lisu Í þættinum er fjallað um þjófnað á Louvre-safni í París 1911, þegar sjálfri Monu Lisu var stolið.
13. nóvember 2020 Edward Jenner Í þættinum er fjallað um sögu bólusetninga og sér í lagi störf breska læknisins Edwards Jenner, sem framkvæmdi fyrstu eiginlegu bólusetninguna við bólusótt árið 1796.
27. nóvember 2020 Eþíópía I Í þættinum er fjallað um sögu Eþíópíu frá því að þar litu fyrst konungsríki dagsins ljós og fram á sextándu öld.
4. desember 2020 Eþíópía II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Eþíópíu.
11. desember 2020 Eþíópía III: Tewodros 2. keisari Í þættinum er fjallað um ævi Tewodrosar 2., keisara Eþíópíu um miðbik nítjándu aldar, sem sameinaði landið eftir langa borgarastyrjöld en lenti svo í deilum við breska heimsveldið.
18. desember 2020 Skrílslæti á jólum Í þættinum er stiklað á stóru í sögu jólahátíðarinnar, meðal annars um ofsafengin skrílslæti og fyllerí sem áður einkenndu jólin víða, og tilraunir til að banna jólahald í gegnum árin.
8. janúar 2021 Byltingin í Túnis Í þættinum er fjallað um upphaf byltingarinnar í Túnis 2011, fyrstu daga arabíska vorsins, og manninn sem sagður er hafa hrundið byltingunni af stað með því að kveikja í sér.
15. janúar 2021 Stríðið 1812 og bruninn í Washington Í þættinum er fjallað um stríð Breta og Bandaríkjamanna sem kennt er við upphafsárið 1812, og brunann í Washington, þegar breskir hermenn kveiktu í bæði Hvíta húsinu og þinghúsinu í bandarísku höfuðborginni.
29. janúar 2021 Osama bin Laden I Í þættinum er fjallað um ævi hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden.
5. febrúar 2021 Osama bin Laden II Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
19. febrúar 2021 Osama bin Laden III Þriðji og síðasti þáttur um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
26. febrúar 2021 Ferdinand og Imelda Marcos Í þættinum er fjallað um Ferdinand Marcos, forseta og einráð á Filippseyjum, konu hans Imeldu, og mótmælin sem urðu til þess að þau hrökkluðust í útlegð í febrúar 1986.
5. mars 2021 Finnska borgarastyrjöldin Í þættinum er fjallað um finnsku borgarastyrjöldina í ársbyrjun 1918.
12. mars 2021 Pocahontas Í þættinum er fjallað um raunverulega ævi Pocahontas, ungrar frumbyggjastúlku sem varð á vegi enskra landnema í Norður-Ameríku í byrjun 17. aldar.
19. mars 2021 Eþíópía IV: Stríðið við Ítali Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Afríkuríkisins Eþíópíu. Í þessum þætti er fjallað um valdatíð keisarans Jóhannesar 4. og eftirmanns hans, Menelik 2., og stríð Eþíópíumanna við Ítali í nýlendukapphlaupi Evrópuþjóða.
9. apríl 2021 Eþíópía V: Haile Selassie Þetta er fimmti þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.
16. apríl 2021 Eþíópía VI Þetta er sjöttu þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.
10. september 2021 Belgica-leiðangurinn Í þættinum er fjallað um leiðangur undir stjórn Belgans Adrien de Gerlache til Suðurskautslandsins í lok nítjándu aldar. Skip leiðangursmanna festist mánuðum saman í hafís og í myrkri heimskautavetursins misstu margir bæði heilsuna og vitið. Leiðangurinn er einnig þekktur sem frumraun eins fræknasta heimskautafara sögunnar.
17. september 2021 Kasakstan Nasarbajevs Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Kasakstan á síðari árum, og sér í lagi valdatíð forsetans Núrsultans Nasarbajev sem lét af embætti í ársbyrjun 2019 eftir nærri þrjá áratugi við völd.
24. september 2021 Afganska baráttukonan Meena Í þættinum er fjallað um afgönsku baráttukonuna Meenu. Hún stofnaði Byltingarsamtök afganskra kvenna (RAWA) í Afganistan á áttunda áratug síðustu aldar til að berjast fyrir réttindum og hag kynsystra sinna. Baráttan varð lífshættuleg.
1. október 2021 Leitin að Eichmann I Í þættinum er fjallað um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld.
8. október 2021 Leitin að Eichmann II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld. Síðari þáttur.
15. október 2021 Soldáninn í Brúnei Í þættinum er fjallað um soldánsveldið Brúnei í Suðaustur-Asíu og sér í lagi núverandi soldán þess og bróður hans, en báðir eru þekktir fyrir eyðslusemi og gjálífi.
22. október 2021 Fjölskyldan Dupont de Ligonnès Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta sakamál Frakklands á síðari árum: hvarf sex manna fjölskyldu, í frönsku borginni Nantes, í apríl 2011.
29. október 2021 El Faro Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys Bandaríkjanna á síðari árum. Í október 2015 hvarf bandarískt flutningaskip við Bahama-eyjar í miðjum fellibyl.
5. nóvember 2021 Aum Shinrikyo I Fyrri þáttur af tveimur um japanska sértrúarsöfnuðinn Aum Shinrikyo.
12. nóvember 2021 Aum Shinrikyo II Síðari þáttur af tveimur um japanska dómsdagssöfnuðinn Aum Shinrikyo og voðaverk þeirra.
26. nóvember 2021 Magnus Hirschfeld Í þættinum er fjallað um þýska lækninn Magnus Hirschfeld, sem var frumkvöðull í kynfræði á fyrstu árum 20. aldar og baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks.
3. desember 2021 Hrakningar Donner-flokksins I Í þættinum er fjallað um svokallaðan Donner-flokk, hóp bandarískra landnema sem freistuðu þess að ferðast þvert yfir Norður-Ameríku til Kaliforníu árið 1846, en lentu í miklum hrakningum á leiðinni. Fyrsti þáttur.
10. desember 2021 Hrakningar Donner-flokksins II Síðari þáttur um hrakfarir hins svonefnda Donner-flokks, bandarískra landnema sem reyndu að komast landleiðina vestur til Kaliforníu sumarið 1846. Í þessum þætti segir frá vetursetu fólksins í Sierra Nevada-fjöllum og örvæntingarfullum tilraunum til að komast af. Athugið að lýsingar í þættinum gætu valdið óhug.
17. desember 2021 Norska svartmálmssenan Í þættinum er fjallað um upphafsár norsku svartmálms- eða black metal-senunnar, unga rokktónlistarmenn sem brenndu aldagamlar kirkjur til grunna og myrtu hver aðra.
7. janúar 2022 Breski íshafsleiðangurinn I Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Bretarnir höfðu viðkomu á Íslandi og síðar voru Íslendingar ræstir út að bjarga þeim úr háska. Fyrri þáttur af tveimur.
14. janúar 2022 Breski íshafsleiðangurinn II Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Einn þeirra festist á jöklinum og voru Íslendingar, meðal annarra, ræstir út að bjarga honum úr háska. Síðari þáttur.
21. janúar 2022 Jonas Salk og mænuveikin Í þættinum er fjallað um bandaríska lækninn Jonas Salk, sem vann að þróun bóluefnis við mænuveiki í Bandaríkjunum um miðbik tuttugustu aldar, og var hampað sem þjóðhetju fyrir störf sín.
28. janúar 2022 Nellie Bly I Í þættinum er fjallað um Nellie Bly, frumkvöðul í blaðamennsku í Bandaríkjunum á ofanverðri nítjándu öld. Hún vakti athygli fyrir að þykjast vera veik á geði og varpa ljósi á bágar aðstæður á geðsjúkrahæli fyrir konur í New York.
4. febrúar 2022 Nellie Bly II Síðari þáttur um ævi og ævintýri bandarísku blaðakonunnar Nellie Bly. Í þessum þætti segir frá frægri ferð hennar umhverfis jörðina 1889-1890.
18. febrúar 2022 Robert Hanssen Í þættinum er fjallað um bandaríska alríkislögreglumanninn Robert Hanssen, sem um árabil lak bandarískum ríkisleyndarmálum til Sovétríkjanna og Rússlands.
4. mars 2022 Hungursneyðin í Úkraínu Í þættinum er fjallað um holodomor, hungursneyðina miklu í Úkraínu á fyrstu árum fjórða áratugar síðustu aldar, þegar milljónir almennra borgara vesluðust upp úr hungri eftir samyrkjuvæðingu sovéskra stjórnvalda.
11. mars 2022 Leiðangur Burke og Wills I Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Fyrsti þáttur.
18. mars 2022 Leiðangur Burke og Wills II Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Annar þáttur.
25. mars 2022 Leiðangur Burke og Wills III Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Þriðji þáttur og síðasti.
1. apríl 2022 Þjóðarmorðið á Sirkössum Í þættinum er fjallað um stríð Rússneska keisaradæmisins við smáþjóðina Sirkassa í Kákasusfjöllum á nítjándu öld, sem lauk með miklu blóðbaði og því að nær allir Sirkassar voru hraktir af heimahögum sínum.
17. júní 2022 Fram-leiðangurinn I Fyrsti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um undirbúning og upphaf leiðangursins, siglingu heimskautaskipsins Fram inn í hafísinn á norðurslóðum.
24. júní 2022 Fram-leiðangurinn II Annar þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um ferð Nansens og Hjalmars Johansens á skíðum og hundasleðum í átt að pólnum.
1. júlí 2022 Fram-leiðangurinn III Þriðji þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um leit Nansens og Johansens að Frans Jósefs-landi og lífið um borð í ísbundna skipinu Fram.
8. júlí 2022 Fram-leiðangurinn IV Fjórði og síðasti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um dvöl Nansens og Johansens í holu yfir þriðja heimskautaveturinn og lok leiðangursins.
15. júlí 2022 Eldgosið á Martinique Í þættinum er fjallað um mikið eldgos sem gjöreyddi borginni Saint Pierre á Karíbahafseyjunni Martinique árið 1902.
22. júlí 2022 Bankaránið á Norrmalmstorgi Í þættinum er fjallað um alræmt rán og gíslatöku í banka við Norrmalmstorg í miðborg Stokkhólms 1973, sem varð til þess að hugtakið „Stokkhólms-heilkenni“ var fundið upp.
5. ágúst 2022 Claude Cahun og heimsstyrjöldin á Jersey Í þættinum er fjallað um franska fjöllistamanninn Claude Cahun, sem ögraði viðteknum kynjahlutverkum og stóð í andspyrnu gegn Þjóðverjum á Ermarsundseyjunni Jersey í seinni heimsstyrjöld.
18. nóvember 2022 Saga Katar Í þættinum er fjallað um sögu Persaflóaríkisins Katar í tilefni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem haldið er þar í ár. Katar er eitt ríkasta land heims í dag en var á öldum áður sárafátækur útnári á Arabíuskaga, ekki síst þekkt fyrir sjóræningja sem þar héldu til og herjuðu á skip á Persaflóa.
25. nóvember 2022 Brons og blóð í Benín Í þættinum er fjallað um konungsríkið Benín sem fyrr á öldum var eitt öflugasta veldi vestanverðrar Afríku, þekkt fyrir bæði magnaða listmuni og grimmilega trúarsiði. Á nýlendutímanum reyndi konungur Benín að streitast á móti þegar Bretar lögðu undir sig landsvæði í Vestur-Afríki, en það fór illa fyrir konungi og ríki hans.
2. desember 2022 Grænlenskur munaðarleysingi í New York Fyrsti þáttur um ævi Minik Wallace, grænlenskan pilt sem bandaríski landkönnuðurinn Robert Peary flutti til New York barn að aldri í lok nítjándu aldar.
9. desember 2022 Grænlenskur munaðarleysingi í New York II Síðari þáttur um ævi Minik Wallace.
16. desember 2022 Kjarnorkutilraunir á Marshall-eyjum Í þættinum er fjallað um sögu Marshall-eyja í Kyrrahafi. Bandaríkjamenn gerðu fjölda tilrauna með kjarnorkusprengjur á eyjunum á árum kalda stríðsins. Eyjaskeggjar voru fluttir burt af heimilum sínum vegna tilraunanna en þó urðu margir fyrir heilsufarslegu tjóni vegna geislavirkni.
30. desember 2022 Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar I Í þættinum er fjallað um ævi og störf Louis Le Prince, fransks uppfinningamanns sem starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Le Prince var brautryðjandi á sviði kvikmyndaupptökutækni, en hvarf á dularfullan hátt áður en hann gat kynnt heimsbyggðinni afrakstur vinnu sinnar.
6. janúar 2023 Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar II Síðari þáttur um franska uppfinningamanninn Louis Le Prince, sem þróaði eina fyrstu kvikmyndavélina en hvarf á dularfullan hátt árið 1890. Í síðari þætti er fjallað um leitina að Le Prince og grunsemdir eiginkonu hans um hver bæri ábyrgð á hvarfi hans.
13. janúar 2023 Kjarnorkukafbáturinn Kúrsk Í þættinum er fjallað um rússneska kjarnorkukafbátinn Kúrsk, sem sökk í Barentshafi í ágúst 2000, og tilraunir Rússlands og erlendra ríkja til að bjarga áhöfn hans af hafsbotni í tæka tíð.
20. janúar 2023 Bólusótt í Birmingham Í þættinum er fjallað um dularfullt tilfelli bólusóttar sem upp kom í Birmingham á Englandi haustið 1978, þegar talið var að búið væri að útrýma bólusótt á heimsvísu.
3. febrúar 2023 Vermeer-falsarinn Í þættinum er fjallað um hollenska listamanninn Han van Meegeren, sem falsaði verk eftir landa sinn, 17. aldar-meistarann Johannes Vermeer, á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.
10. febrúar 2023 Gullæðið í Kaliforníu I Fyrsti þáttur um gullæðið mikla sem braust út í Kaliforníu árið 1848.
17. febrúar 2023 Gullæðið í Kaliforníu II Síðari þáttur um gullæðið mikla sem hófst í Kaliforníu árið 1848. Í þessum þætti er fjallað um straum gullgrafara og annarra landnema til Kaliforníu og hryllilega meðferð þeirra á frumbyggjum landsins.
17. mars 2023 Raunir Ödu Blackjack Í þættinum er fjallað um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem slóst í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar til Wrangel-eyju á norðurhjara 1921.
24. mars 2023 Raunir Ödu Blackjack II Síðari þáttur um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem endaði alein á eyðiey á norðurhjara eftir að hafa slegist í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar 1921.
21. apríl 2023 Borpallurinn Alexander Kielland Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta slys í sögu Noregs. Í illviðri 27. mars 1980 hvolfdi olíuborpallinum Alexander Kielland á Norðursjó og 123 menn fórust.
28. apríl 2023 Hvarf Emanuelu Orlandi Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta mannhvarfsmál í sögu Ítalíu, hvarf hinnar fimmtán ára gömlu Emanuelu Orlandi í Rómaborg í júní 1983. Emanuela var búsett í Vatíkaninu og lífseigar kenningar eru um að hvarf hennar kunni að tengjast öflum í kaþólsku kirkjunni, alþjóðapólitík eða skipulagðri glæpastarfsemi.
12. maí 2023 Madagaskar Í þættinum er fjallað um sögu Madagaskar frá landnámi eyjunnar og fram á valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst.
26. maí 2023 Madagaskar II Síðari þáttur um sögu Madagaskar og valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst en varðist af hörku tilraunum evrópsku nýlenduveldanna til að leggja ríki hennar undir sig.
8. september 2023 Valdaránið í Chile 1973 Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Chile fyrir hálfri öld, 11. september 1973, og endalok forsetatíðar sósíalistans Salvadors Allende.
15. september 2023 Anita Bryant og Save Our Children í Flórída Í þættinum er fjallað um baráttu bandarísku söngkonunnar Anitu Bryant gegn réttindum hinsegin fólks í Flórída á ofanverðum áttunda áratug síðustu aldar.
22. september 2023 Gyðingar Danmerkur Í þættinum er fjallað um afdrif danskra Gyðinga eftir að Þýskaland hernam Danmörku í seinni heimsstyrjöld.
29. september 2023 Gyðingar Danmerkur II Síðari þáttur um björgun dönsku Gyðinganna á árum seinni heimsstyrjaldar.
27. október 2023 Hvalskipið Essex I Fyrsti þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
3. nóvember 2023 Hvalskipið Essex II Annar þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
10. nóvember 2023 Hvalskipið Essex III Þriðji þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
17. nóvember 2023 Hvalskipið Essex IV Fjórði og síðasti þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
24. nóvember 2023 Frumbyggjar Ástralíu Í þættinum er fjallað um sögu frumbyggjaþjóða Ástralíu og þeirra fyrstu kynni við sæfara og landkönnuði frá norðurhveli jarðar.
1. desember 2023 Frumbyggjar Ástralíu II Í þættinum er fjallað um fyrstu ár fanganýlendu Breta í Ástralíu og samskipti Bretanna við frumbyggja landsins.
15. desember 2023 Frumbyggjar Ástralíu III Í þættinum er fjallað um fyrstu ár fanganýlendu Breta í Ástralíu og upphaf andspyrnu frumbyggja landsins við landtöku Breta.
29. desember 2023 Apollo 8 Í þættinum er fjallað um ferð þriggja bandarískra geimfara á braut um tunglið, Apollo 8, um jólaleyti árs 1968.
12. janúar 2024 Kúariða I Í þættinum er fjallað um banvænan sjúkdóm sem fyrst varð vart í breskum nautgripum á níunda áratug síðustu aldar, kúariðu.
19. janúar 2024 Kúariða II Í þættinum er haldið áfram að fjalla um kúariðufaraldurinn í Bretlandi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og áhrif hans á mannfólk.
26. janúar 2024 Bungaree Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um upphaf landnáms Breta í Ástralíu og sögu frumbyggjaþjóða Ástralíu. Í þessum þætti er sjónum beint að manni að nafni Bungaree, sem var túlkur í landkönnunarleiðöngrum Breta.
2. febrúar 2024 Iran Air 655 Í þættinum er fjallað um farþegaflug íranska flugfélagsins Iran Air sem var skotið niður af bandarísku herskipi á Persaflóa, 3. júlí 1988.
9. febrúar 2024 Galdrafár í Salem I Í þættinum er fjallað um undarlega atburði sem gerðust í Salem-þorpi á Nýja Englandi seint á 17. öld. Nokkrar ungar stúlkur kenndu sér undarlegra meina og sökuðu konur í þorpinu um að beita þær galdri. Úr varð eitt alræmdasta galdrafár í sögu Norður-Ameríku.
16. febrúar 2024 Galdrafár í Salem II Í þættinum er áfram fjallað um undarlega atburði sem gerðust í Salem-þorpi á Nýja Englandi seint á 17. öld. Nokkrar ungar stúlkur kenndu sér undarlegra meina og sökuðu konur í þorpinu um að beita þær galdri, og úr varð eitt alræmdasta galdrafár í sögu Norður-Ameríku. Í þessum þætti er fjallað um ásakanir á hendur nýjum nornum í Salem.
1. mars 2024 Galdrafár í Salem IV Fjórði þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi 1692.
8. mars 2024 Galdrafár í Salem V Fimmti og síðasti þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi sem hófst 1692.
15. mars 2024 Matthew Shepard Í þættinum er fjallað um morðið á Matthew Shepard, samkynhneigðum ungum manni í Wyoming í Bandaríkjunum 1998, og áhrif þess á réttindabaráttu hinsegin fólks vestanhafs.
22. mars 2024 Páskaeyja Í þættinum er fjallað um afskekkta smáeyju í sunnanverðu Kyrrahafi, sem evrópskir sæfarar nefndu Páskaeyju.
23. mars 2024 Galdrafár í Salem III Í þættinum er haldið áfram að fjalla um galdrafárið mikla sem braust út á Nýja Englandi 1692.
5. apríl 2024 Páskaeyja II Í þættinum er áfram fjallað um sögu Páskaeyju á sunnanverðu Kyrrahafi, sér í lagi þær hörmungar sem íbúar eyjunnar þurftu að þola á nítjándu öld.
12. apríl 2024 Páskaeyja III Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Páskaeyju í Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir evrópskra trúboða til að koma sér fyrir á eyjunni og kristna íbúa hennar, og franskan ævintýramann sem hafði önnur áform um framtíð eyjunnar.
19. apríl 2024 Páskaeyja IV Fjórði þáttur um sögu Páskaeyju á Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir útlendinga til að gera eyjuna að stóru sauðfjárbúi og endalok sjálfstæðis eyjaskeggja í lok nítjándu aldar.
3. maí 2024 Páskaeyja V Lokaþáttur um sögu Páskaeyju eða Rapa Nui í Kyrrahafi.