Atburður (líkindafræði)
Í líkindafræði er atburður mengi útkoma eða með öðrum orðum hlutmengi í útkomumenginu (Ω).
Sundurlægir atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Ef að sniðmengi tveggja atburða er tómt, þá eru atburðirnir kallaðir sundurlægir. Það er að segja, ef að A og B eru atburðir, þá eru þeir sundurlægir ef og aðeins ef .
Dæmi[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/36/Two_red_dice_01.svg/200px-Two_red_dice_01.svg.png)
Klassískt dæmi er að varpa hlutkesti - sex hliða teningur, þar sem að líkurnar á hverri hlið teningsins er 1/6. Möguleikarnir eru . Þá eru hugsanlegir atburðir öll hugsanleg hlutmengi í , til dæmis {1}, {jákvæðar tölur}, {tölur hærri en 3} og {3, 4}.
Í Lottó 5-38 eru 38 mögulegar tölur, og mengi allra hugsanlegra útkoma . Nú er einhver þátttakandi í lottóinu með röðina 4 - 12 - 19 - 30 - 31 á lottómiðanum sínum. Þá vonast hann eftir að atburðurinn endurtaki sig fimm sinnum, því þá hefur hann unnið til fyrsta vinnings.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3d/Paul_C%C3%A9zanne%2C_Les_joueurs_de_carte_%281892-95%29.jpg/200px-Paul_C%C3%A9zanne%2C_Les_joueurs_de_carte_%281892-95%29.jpg)
Sé spilastokkur tekinn, með 52 spilum ásamt tveimur jókerum, og eitt spil valið af handahófi úr stokknum, þá eru hér tíundaðir nokkrir hugsanlegir atburðir:
- Mannspil kemur upp (atburðurinn hefur 12 stök).
- Fjarki kemur upp (atburðurinn hefur 4 stök).
- Rautt spil kemur upp (26 stök).
- Hjarta-tían kemur upp (1 stak).
- Spil kemur upp sem er hvorki rautt né svart, og er ekki jóker (0 stök. Líkindin á þessum atburði eru engir).
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- Fyrirmynd greinarinnar var „Event (probability theory)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 10. janúar 2006.