Saint Paul
Útlit
(Endurbeint frá St. Paul)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Saint_Paul_Photo_Collage.jpg/220px-Saint_Paul_Photo_Collage.jpg)
Saint Paul (stytt sem St. Paul) er höfuðborg og næstfjölmennasta borg Minnesota. Íbúar voru um 308.000 árið 2018. Borgin tengist stærstu borginni Minneapolis og liggur á austurbakka Mississippi-fljóts þar sem það mætir Minnesota-fljóti. Saman kallast þær tvíburaborgirnar; Minneapolis-Saint Paul, og hafa um 3,6 milljónir íbúa samtals. Borgin er nefnd eftir Páli postula.