Sólúr
Útlit
(Endurbeint frá Sólskífa)
Sólúr eða sólskífa er mælitæki sem sýnir tíma dags eftir stöðu sólar á himninum. Algengasta útgáfa sólúrs er lárétt skífa með nál sem hallar inn yfir skífuna. Skugginn sem nálin varpar á skífuna er þá eins og vísir sem sýnir tíma dags. Sólúr eru algengar skreytingar á húsum og í görðum.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist sólúrum.