North Cascades-þjóðgarðurinn
Útlit
(Endurbeint frá North Cascades National Park)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1e/Map_of_North_Cascades_National_Park.png/220px-Map_of_North_Cascades_National_Park.png)
North Cascades-þjóðgarðurinn (enska: North Cascades National Park) er þjóðgarður í norðurhluta Fossafjalla Washingtonfylkis. Hann var stofnaður árið 1969. Bergið þar er eldra en í suðurhluta Fossafjalla og eru þar snarbrött fjöll sem roföflin hafa mótað. Um 312 jöklar eru í þjóðgarðinum sem er það mesta í bandarískum þjóðgarði utan Alaska. Cascade Pass er vinsæl gönguleið en það skarð var notað sem leið af frumbyggjum svæðisins. 75 tegundir spendýra og 200 fuglategundir lifa þar.
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist North Cascades-þjóðgarðurinn.
Fyrirmynd greinarinnar var „North Cascades National Park'“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. nóv. 2016.