Vörtubirki
Vörtubirki | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Vörtubirki (Betula pendula) við Stokkhólmsháskóla.
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Betula pendula Roth. |
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/dc/Hengibirki.jpg/220px-Hengibirki.jpg)
Vörtubirki eða hengibirki eða skógviður (fræðiheiti: Betula verrucosa eða Betula pendula) er hávaxið evrópskt birkitré með laufskrúði sem slútir niður svipað og á grátvíði. Það er náskylt Mansjúríubjörk (Betula platyphylla). Vörtubirki verður venjulega 15-25 metra hátt með granna krónu og sveigðar greinar með slútandi smágreinum. Börkurinn er hvítur með svörtum flekkjum neðst á stofninum.
Vörtubirki hefur náð 15 metrum á Akureyri. [1]
Nytjar[breyta | breyta frumkóða]
Vörtubjörk er notuð í smíði og eldivið[2] á sama hátt og ilmbjörk. Einnig er litað úr henni (börkur og lauf)[3] og hægt er að blanda fræinu í brauð til bragðbætis.
Masúr[breyta | breyta frumkóða]
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4c/Bj%C3%B8rk_valbj%C3%B8rk.jpg/220px-Bj%C3%B8rk_valbj%C3%B8rk.jpg)
Vörtubirki er sú birkitegund sem oftast myndar svonefndan masúrvið, sem er erfðagalli sem lætur frumur og árhringi mynda óregluleg mynstur svo að það líkist logum eða bylgjum.[4]
Masúrmyndun er algengust í afbrigðinu Betula pendula var. carelica, þar sem masúrmyndun erfist í 60–70% af öllum afkvæmum.[5]
Einnig getur masúrviður myndast í ilmbjörk,[6] en hefur ekki fundist í öðrum birkitegundum. Masúr kemur fyrir í allnokkrum öðrum lauftrjám, svo sem: reyni, elri, ösp, álm og hlyn, og jafnvel í barrtrjám: fura, þinur og Sequoia sempervirens.
Sortir[breyta | breyta frumkóða]
Af hengibjörk eru nokkrar sortir. Nokkrar slíkar nefndar hér:
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fd/Orn%C3%A4sbj%C3%B6rk.jpg/220px-Orn%C3%A4sbj%C3%B6rk.jpg)
- Dalabjörk (Betula pendula 'Dalecarlica')
- (Betula pendula 'Laciniata')
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8d/Betula_pendula_laciniata0.jpg/220px-Betula_pendula_laciniata0.jpg)
- (Betula pendula 'Crispa')
- Grátbjörk (Betula pendula 'Tristis')
- Hengibjörk (Betula pendula 'Youngii')
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a3/Birke_3287.jpg/220px-Birke_3287.jpg)
- Súlubjörk (Betula pendula 'Fastigiata')
- Blóðbjörk (Betula pendula 'Purpurea')
- Masúrbjörk (Betula pendula 'Carelica')
Sjá einnig[breyta | breyta frumkóða]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Merk Tré Visit Akureyri. Skoðað 14. ágúst 2017.
- ↑ ”Handbok Överlevnad”. Svenska Armen, 1988
- ↑ "Spångmurs växtfärgning". Spangmurs.se. Lesið 18 febrúar 2013.
- ↑ "Masúrbjörk - Nytjar". Masurmannen.com. Lesið 18 febrúar 2013.
- ↑ Rannsóknardeild finnsku skögræktarinna 2007-06-10: Curly birch and its management in Finland (á ensku) Skoðað 2012-08-03
- ↑ The Wood Database: Masur Birch Geymt 3 ágúst 2016 í Wayback Machine Länkad 2012-08-03
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)