Ólafsfjörður
66°04′08″N 18°38′50″V / 66.06889°N 18.64722°V
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/%C3%93lafsfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg/220px-%C3%93lafsfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg)
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/96/Olafsfjardarbaer_map.png/220px-Olafsfjardarbaer_map.png)
Ólafsfjörður er bær við samnefndan fjörð utarlega á Tröllaskaga í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Bærinn byggir afkomu sína að mestu á sjávarútvegi en landbúnaður er stundaður í dalnum þar inn af. Þann 1. janúar 2015 voru íbúar Ólafsfjarðar 782 samkvæmt Hagstofu Íslands.
Þéttbýli fór að myndast í Ólafsfjarðarhorni undir lok 19. aldar og varð það að löggiltum verslunarstað 20. október 1905. Árið 1917 var nafni hreppsins breytt í Ólafsfjarðarhrepp, en fram til þess hafði hann heitið Þóroddsstaðahreppur, eftir bænum Þóroddsstöðum sem er í miðri sveit. Kaupstaðarréttindi fékk Ólafsfjörður árið 1945. Í janúar 2006 samþykktu Ólafsfirðingar og Siglfirðingar að sameina bæina tvo í eitt sveitarfélag. Sameiningin gekk í gildi 11. júní 2006 að afloknum sveitarstjórnarkosningum 27. maí. Í kosningu um nýtt nafn sem fór fram samhliða varð tillagan Fjallabyggð ofaná.
Heilsársvegir að Ólafsfirði liggja annars vegar frá Dalvík í gegnum Múlagöng, en til vesturs liggur vegur frá Ólafsfirði yfir Lágheiði yfir í Fljót sem oft er ófær á veturna. Árið 2010 komst síðan á heilsársvegtenging við Siglufjörð með Héðinsfjarðargöngum sem voru vígð 2. október.
![](http://chped.net/https/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0e/2008-05-22_06_%C3%93lafsfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg/800px-2008-05-22_06_%C3%93lafsfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg)